Handbolti

Sigurhrina Íslands á HM - samantekt frá Stöð 2 sport

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar

Íslenska landsliðið vann alla fimm leiki sína í riðlakeppninni á HM í Svíþjóð sem er einstakur árangur í handboltasögu þjóðarinnar. Keppni í milliriðli hefst á laugardaginn með leik gegn Þjóðverjum og fram að þeim tíma geta lesendur Vísis gleymt sér yfir þessu myndbandi sem birt var í þættinum Þorsteinn J. & gestir í kvöld. Hljómsveitin Hjaltalín á kryddar upplifunina enn frekar. Góða skemmtun.

Keppni í milliriðli hefst á laugardag með leik gegn Þjóðverjum en tímasetningar liggja ekki fyrir. Á mánudag verður leikið gegn Spánverjum og á þriðjudag gegn heims, Evrópu og Ólympíumeistaraliði Frakka.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×