Samþykki á að draga til baka 24. maí 2011 07:00 Í frétt á mbl.is síðdegis 30. apríl segir: „Hersveitir NATO hafa varpað sprengjum á stjórnarbyggingu í Trípólí þar sem m.a. ríkissjónvarpið er til húsa. Yfirvöld í Líbíu segja að tilgangur loftárásarinnar hafi verið að drepa Gaddafi þegar hann var að ávarpa þjóðina í ríkissjónvarpinu.“ Í sömu frétt er sagt að NATO hafi hafnað boði Gaddafis um vopnahlé. Síðla kvölds bárust síðan fréttir af því að flugvélar NATO hefðu gert árás á hús Gaddafis í Trípólí þá um kvöldið. Sonur hans og þrjú ung barnabörn fórust. Í húsinu voru einnig Gaddafi sjálfur, eiginkona hans og fleiri úr fjölskyldunni. Um þetta þarf í sjálfu sér ekki að hafa fleiri orð. Hér var um hreina morðárás að ræða og barnamorð í ofanálag. Í fljótu bragði verður ekki annað séð en þetta hafi verið stríðsglæpur. NATO tók þann 25. mars yfir hernaðargerðir í Líbíu sem höfðu að forsendu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1973 frá 17. mars. Ályktunin hefur verið umdeild enda sátu fimm ríki hjá. Með henni var sett á loftferðabann yfir Líbíu. Jafnframt er tekið fram að hún miði að verndun almennra borgara og lausn átakanna en ekki að knýja fram stjórnarskipti. Árásir á sjónvarpsstöð og heimili og önnur borgaraleg skotmörk eru því langt utan við það sem þessi ályktun heimilar. Aðgerðir NATO hafa líklega frá upphafi farið út fyrir ramma ályktunarinnar og sannanlega þessar aðgerðir. Margir hafa gagnrýnt samþykki íslensku ríkisstjórnarinnar við aðgerðir NATO. Forystumenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hafa sagt að utanríkisráðherra hafi veitt þetta samþykki án þess að leita álits VG. Í ályktun stjórnar VG 25. mars segir: „Stjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fordæmir allar aðgerðir í Líbíu sem ekki eru í samræmi við samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.“ Á fundi sínum 20.-21. maí skerpti flokksráð VG á þessu með ályktun þar sem segir: „Flokksráð VG fordæmir loftárásir NATO á Líbíu og skorar á þingmenn VG að bera fram á Alþingi þingsályktunartillögu þar að lútandi,“ en á sömu leið ályktaði kjördæmisráð flokksins í Suðurkjördæmi á fundi sinum 7. maí. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Sjá meira
Í frétt á mbl.is síðdegis 30. apríl segir: „Hersveitir NATO hafa varpað sprengjum á stjórnarbyggingu í Trípólí þar sem m.a. ríkissjónvarpið er til húsa. Yfirvöld í Líbíu segja að tilgangur loftárásarinnar hafi verið að drepa Gaddafi þegar hann var að ávarpa þjóðina í ríkissjónvarpinu.“ Í sömu frétt er sagt að NATO hafi hafnað boði Gaddafis um vopnahlé. Síðla kvölds bárust síðan fréttir af því að flugvélar NATO hefðu gert árás á hús Gaddafis í Trípólí þá um kvöldið. Sonur hans og þrjú ung barnabörn fórust. Í húsinu voru einnig Gaddafi sjálfur, eiginkona hans og fleiri úr fjölskyldunni. Um þetta þarf í sjálfu sér ekki að hafa fleiri orð. Hér var um hreina morðárás að ræða og barnamorð í ofanálag. Í fljótu bragði verður ekki annað séð en þetta hafi verið stríðsglæpur. NATO tók þann 25. mars yfir hernaðargerðir í Líbíu sem höfðu að forsendu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1973 frá 17. mars. Ályktunin hefur verið umdeild enda sátu fimm ríki hjá. Með henni var sett á loftferðabann yfir Líbíu. Jafnframt er tekið fram að hún miði að verndun almennra borgara og lausn átakanna en ekki að knýja fram stjórnarskipti. Árásir á sjónvarpsstöð og heimili og önnur borgaraleg skotmörk eru því langt utan við það sem þessi ályktun heimilar. Aðgerðir NATO hafa líklega frá upphafi farið út fyrir ramma ályktunarinnar og sannanlega þessar aðgerðir. Margir hafa gagnrýnt samþykki íslensku ríkisstjórnarinnar við aðgerðir NATO. Forystumenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hafa sagt að utanríkisráðherra hafi veitt þetta samþykki án þess að leita álits VG. Í ályktun stjórnar VG 25. mars segir: „Stjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fordæmir allar aðgerðir í Líbíu sem ekki eru í samræmi við samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.“ Á fundi sínum 20.-21. maí skerpti flokksráð VG á þessu með ályktun þar sem segir: „Flokksráð VG fordæmir loftárásir NATO á Líbíu og skorar á þingmenn VG að bera fram á Alþingi þingsályktunartillögu þar að lútandi,“ en á sömu leið ályktaði kjördæmisráð flokksins í Suðurkjördæmi á fundi sinum 7. maí.
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun