Óeirðasveit lögreglunnar óstarfhæf Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 28. september 2011 19:00
Óeirðasveit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er óstarfhæf eftir að yfirgnæfandi meirihluti sveitarmanna ákvað að segja sig úr sveitinni síðdegis í dag. Áhyggjuefni segir innanríkisráðherra. Yfirgnæfandi meirihluti lögreglumanna óeirðasveitarinnar á höfuðborgarsvæðinu samþykkti á fundi síðdegis í dag að segja sig úr sveitinni. Rúmlega áttatíu lögreglumenn voru á fundinum og var samstaða einkennandi meðal fundarmanna. Með uppsögnunum eru uppsagnir óeirðarsveitarmanna komnar yfir hundrað talsins, en nú þegar hafa tugir lögreglumanna í sveitum víðsvegar um landið sagt sig frá þeim störfum, meðal annars á Suðurnesjum við Eyjafjörð, á Akranesi, Selfossi og í Bogarnesi. En hvað þýðir úrsögnin úr sveitinni? „Það þýðir að hópur aðgerðasveitarmanna, eins og fólk hefur séð við Austurvöll síðustu 2-3 ár, verða ekki lengur til staðar," segir Leifur Halldórsson, rannsóknarlögreglumaður. En er ekki hægt að skikka lögreglumennina til að sinna þessum störfum? „Við teljum okkur ekki skylduga til þess að sinna þessum störfum. Við erum vissulega skyldugir til þess að mæta til vinnu og sinna henni sem slíkri," segir Leifur og bætir við: „Við búum ekki við þetta ofríki stjórnvalda lengur. Við erum búnir að fá nóg." Sumir lögreglumenn höfðu á orði eftir fundinn að bjór muni vera mjög vinsæll drykkur meðal lögreglumanna við morgunverðarborðið á laugardagsmorgun. „Það er vissulega óánægja með kjörin og það er eitthvað til þess að hafa áhyggjur af. Við verðum að horfa á þetta til framtíðar og koma kjaramálum lögreglunnar í betri farveg. Þetta eru erfið störf við og höfum öll góðan skilning á því," segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira