Viðskipti innlent

Ætla að ferja 50.000 manns á fyrsta árinu

Markaðsstjórinn Hugh Aitken kynnti áformin fyrir blaðamönnum í Hörpu í gær. Hann kvaðst mjög spenntur fyrir verkefninu.Fréttablaðið/gva
Markaðsstjórinn Hugh Aitken kynnti áformin fyrir blaðamönnum í Hörpu í gær. Hann kvaðst mjög spenntur fyrir verkefninu.Fréttablaðið/gva
Breska flugfélagið EasyJet hyggst fljúga til Íslands frá og með næsta vori. Fyrstu farmiðarnir fara í sölu í dag og þeir ódýrustu kosta ekki nema rúmar sex þúsund krónur íslenskar aðra leið og ellefu þúsund krónur báðar leiðir, með öllum sköttum og gjöldum.

Fulltrúar flugfélagsins kynntu þessi áform sín á blaðamannafundi í Hörpu í gær. Þar kom fram að jómfrúrflugið yrði þriðjudaginn 27. mars 2012.

Flogið verður þrisvar í viku, þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga, frá Keflavíkurflugvelli til Luton-flugvallar nærri London. Að sögn Hugh Aitken, markaðsstjóra EasyJet í Bretlandi, tekur ekki nema 23 mínútur að ferðast frá flugvellinum inn í miðborg London.

Stefnt er að því að fljúga allt árið um kring til Íslands en í fyrstu verður þó einungis hægt að panta farmiða út næsta sumar, enda hefur áætlun flugfélagsins ekki verið gerð lengra fram í tímann.

Aitken segir að EasyJet búist við 50.000 farþegum á sínu fyrsta ári. Fyrst og fremst verði einblínt á markaðssetningu í Bretlandi og líklega verði „mikill meirihluti“ farþega Bretar sem ferðast til Íslands, frekar en öfugt. Félagið hafi enda sterka stöðu á Bretlandsmarkaði.

Að sögn Aitkens stefnir EasyJet á að bjóða Íslendingum upp á fleiri áfangastaði en Luton-flugvöll ef fyrsta árið heppnast vel.

EasyJet er lággjaldaflugfélag og Aitken dregur ekki dul á að því fylgi enginn lúxus, enda sé helsta markmiðið að halda verðinu á farseðlum lágu. Nú um stundir hagnist félagið um þrjú pund á hvert sæti, en stefnt sé að því að hækka það í fimm pund á næstu misserum.

EasyJet er eitt stærsta flugfélag í Evrópu, flýgur til þrjátíu landa og gerir út ríflega 200 flugvéla flota. Vélarnar sem EasyJet mun fljúga til Íslands eru af gerðinni Airbus A319. Í þeim rúmast 156 farþegar.

Veruleg samkeppni er nú komin í flugsamgöngur frá Íslandi. Þegar fljúga Icelandair og Iceland Express til London og þá hefur Skúli Mogensen boðað stofnun flugfélagsins WOW Air. Ekki liggur þó fyrir hvort það muni fljúga til Bretlands.stigur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×