Erlent

Eggert borgaði umboðsmanni 160 milljónir þegar Lucas Neill var keyptur

Arnar Björnsson skrifar
Eggert Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður West Ham.
Eggert Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður West Ham.
Fyrrverandi umboðsmaður knattspyrnumanna, Peter Harrison, fer hörðum orðum um peningasukkið í enska fótboltanum í Daily Mail í morgun.  Eggert Magnússon, þáverandi stjórnarformaður West Ham,  borgaði Harrison rúmlega 160 milljónir króna í þóknun þegar Lucas Neill var keyptur til West Ham í janúar 2007.

Harrison var umboðsmaður fótboltamanna í 20 ár en hætti í janúar þegar nefnd enska knattspyrnusambandsins kvað upp þann úrskurð að hann mætti ekki sjá um sölu á Andy Carroll þegar Liverpool keypti hann frá Newcastle á 35 milljónir punda.  Harrison hafði áður séð um mál Carrols en leikmaðurinn skipti um umboðsmann skömmu fyrir vistaskiptin. Peter Harrison þénaði milljónir punda.

Eiður Smári Guðjohnsen var einn margra leikmanna sem hann var með á sínum snærum.  Í greininni í Daily Mail segist Harrison hafa fengið 900 þúsund punda þóknun, rúmlega 160 milljónir króna, frá Eggerti Magnússyni þáverandi stjórnarformanni West Ham þegar Lundúnaliðið keypti Ástralann Lucas Neill frá Blackburn.  Leikmaðurinn var á leið til Liverpool í janúar 2007 en West Ham vildi fá hann, borgaði umboðsmanninum og samdi við Neill sem fékk 72 þúsund pund í vikulaun og margfaldaði launin sem Liverpool hafði boðið. Harrison segist skammast sín fyrir að hafa tekið við peningunum.

Í greininni í Daily Mail talar umboðsmaðurinn fyrrverandi um sukkið í boltanum.  Í gamla daga var foreldrum efnilegra leikmanna boðnir ískápar til þess að komast í mjúkinn hjá verðandi atvinnumönnum.  Í dag fá foreldrar bíla, húsnæði og peninga.  Í sjónvarpsþætti ætlar Harrison að nafngreina 2 knattspyrnustjóra sem tekið hafa við greiðslum í leikmannasölum en slíkt er ólöglegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×