Ekki villast Ingibjörg Kristleifsdóttir og Björk Óttarsdóttir skrifar 7. apríl 2011 09:00 Hlutverk starfshóps um greiningu tækifæra til samrekstrar og/eða sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila var að greina tækifæri í hverfum borgarinnar til endurskipulagningar á rekstri leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila með faglegan og fjárhagslegan ávinning í huga. Í starfi sínu átti hópurinn að hafa það að leiðarljósi að standa vörð um faglegt starf og að halda í styrkleika hvers leikskóla, grunnskóla og frístundaheimilis. Niðurstaða hópsins er að fækka stjórnendum í leikskólum . Opinbert markmið þess gjörnings er að ná fram fjárhagslegum og faglegum ávinningi með því að gera 30 leikskóla að 15. Hvernig samrýmist það að standa vörð um faglegt starf og halda í styrkleika hvers skóla því að fækka stjórnendum? Enn er tækifæri til þess að hætta við sameiningar skóla í Reykjavík enda hafa ekki komið nægjanlega sterk rök sem réttlæta svo afdrifaríka aðgerð eins og tillögu starfshóps um greiningu tækifæra til samreksturs/sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Fagfólk og foreldrar binda enn vonir við að hætt verði við uppsagnir skólastjórnenda enda vilja metnaðarfullir borgarfulltrúar varla skilja eftir sig það minnismerki að hafa þvingað fram sameiningar sem skilja eftir sig ófyrirsjánlegan skaða. Lítum á nokkrar staðhæfingar sem koma fram í skýrslunni og dæmi um fjölmargar spurningar sem vakna við lesturinn. „Með því að sameina yfirstjórn leikskólanna verður til stærri rekstrareining og tækifæri gefst til að einfalda stjórnsýslu, auka skilvirkni í stjórnun og stefnumótun og auðvelda yfirsýn:" Er það í þágu barna í leikskólum að færa stjórnandann frá daglegu starfi með börnum og kennurum með því að hækka valdapýramídann og minnka enn möguleika á samráði kennara og stjórnenda? Er það í þágu barna að gera leikskólana sem eru lifandi samfélag barna, starfsmanna og foreldra, að einsleitum stofnunum þar sem ákvarðanir eru teknar ofanfrá? Hvernig auðveldar það stefnumótun og yfirsýn að færa stjórnandann fjær kennurum sínum og börnum skólans með fjölgun starfsstöðva og auknu vinnuálagi? „Með sameiningu má ná fram hagræðingu í rekstri og sparnaði í innkaupum „ Hvað er í veginum fyrir því að hagræða í rekstri og spara í innkaupum án þess að sameina ? Leikskólastjórnendur hafa fengið lof fyrir það að vera útsjónarsamir og nýtnir. Hver er niðurstaða ársins 2010 ? Sýnir hún að leikskólarnir hafi verði reknir á óhagkvæman hátt og að hægt sé að skera frekar niður í rekstri? Fyrir kosningar 2010 voru frambjóðendur sem nú eru við stjórnvölinn sammála um það á fundi með starfsmönnum skóla í Norræna húsinu að ekki væri hægt að líða frekari niðurskurð í leikskólum nema það bitnaði verulega á gæðum skólastarfsins gagnvart börnunum. „Við sameiningu má ná fram betri nýtingu varðandi sérkennslu og aðra sérfræðiþekkingu." Hvað er í veginum fyrir því að efla samstarf á milli skóla varðandi sérkennslu og aðra sérfræðiþekkingu? Hvernig má fækkun fagmanna verða til þess að sérfræðiþekking aukist ? „Samræmd stefnumótun, ein skólanámskrá og starfsáætlun, færri vinnustundir fara í áætlanagerð". Hvernig fækkar vinnustundum við stefnumótun, skólanámskrá og áætlanagerð við fækkun stjórnenda. Er ekki hugmyndin að allt starfsfólk leikskólanna komi að þessari vinnu? „Samnýting mötuneyta er raunhæfur kostur" Samnýting mötuneyta er þekkt í leikskólum Reykjavíkur. Leikskólastjórnendur hafa séð þá möguleika og unnið að því að hafa samvinnu um rekstur mötuneyta. „Hægt verður að samnýta starfsfólk milli starfsstöðva, t.d. vegna forfalla og sérverkefna" Verður til fleira starfsfólk í starfsstöðvunum þannig að þær verði aflögufærar með starfsmenn til að lána vegna forfalla í aðrar starfsstöðvar? Þarf ekki stjórnanda í hverri starfsstöð til þess að skipuleggja og útfæra þetta verkefni ? „Aukið svigrúm myndast til þess að ráða inn sérhæft starfsfólk; í sérkennslu, listgreinakennslu, heimspeki og margt fleira¨" Verður þeim peningum sem sparast við fækkun leikskólastjórnenda veitt inn í skólann aftur til þess að fjölga leikskólakennurum ? Hvernig er sú áætlun? Á hverju byggist sú áætlun ef hún er til ? Þýðir þetta að Reykjavíkurborg ætli að gera gangskör í því að ná leikskólakennurum frá öðrum sveitarfélögum? Ætlar Reykjavíkurborg að nýta fjármunina sem sparast til þess að gera átak í því að mennta fleiri leikskólakennara? Leikskólakennarar og stjórnendur hafa í störfum sínum ávallt haft hag barnanna í fyrirrúmi. Allar ákvarðanir eru teknar út frá því hvað er best fyrir börn. Rekstraraðilar hafa verið talsmenn fyrir sjónarmið atvinnulífsins. Þ.e. að hlutverk leikskólanna sé fyrst og fremst þjónustuhlutverk fyrir atvinnulífið. Oft fara þessi sjónarmið saman en stundum myndast togstreita um það hvort vegur þyngra skóli fyrir börn eða þjónusta við foreldra. Leikskólakennarar og stjórnendur hafa gert kröfur um barn og fjölskylduvænna samfélag en jafnframt séð til þess að umhverfi barnanna í leikskólanum sé það besta sem hægt er að bjóða upp á miðað við aðstæður. Aðstæður hafa ekki alltaf verið góðar. Leikskólum hefur fjölgað gríðarlega hratt undanfarna áratugi og fjölgun kennara hefur ekki haft við þeirri þróun. Skortur á leikskólakennurum er alvarlegt vandamál sem verður að finna lausn á í samvinnu ráðuneytis, sveitarfélaga, háskóla og stéttarfélaga. Starfið í leikskólum verður að vera eftirsóknarvert til þess að fólk velji sér það sem ævistarf. Aðför að stjórnendum er ekki rétta leiðin til þess. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Börn í gámaskólum á meðan bæjarskrifstofur stækka – hvar er forgangsröðin? Ásgeir Elvar Garðarsson Skoðun Munar þig um 5-7 milljónir árlega? Jón Pétur Zimzen Skoðun Skýr stefna um málfrelsi Róbert H. Haraldsson Skoðun Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson Skoðun Keldnaland – fjölmenn hverfi í mótun Þorsteinn R. Hermannsson Skoðun Eflum traustið Helgi Áss Grétarsson,Marta Guðjónsdóttir Skoðun Hver er kjarninn í samfélagi sem selur hjarta sitt? Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Heilsufarsmat á vinnustöðum: Góð fjárfesting í heilbrigði og vellíðan starfsfólks Gígja Valgerður Harðardóttir Skoðun Kosningar í september Guðveig Lind Eyglóardóttir Skoðun Framtíð nemenda í Kópavogi í fyrsta sæti Halla Björg Evans Skoðun Skoðun Skoðun Kosningar í september Guðveig Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Þegar orkuöflun er sett á ís - dæmið frá Suður-Afríku Hallgrímur Óskarsson skrifar Skoðun Framtíð nemenda í Kópavogi í fyrsta sæti Halla Björg Evans skrifar Skoðun Skýr stefna um málfrelsi Róbert H. Haraldsson skrifar Skoðun Heilsufarsmat á vinnustöðum: Góð fjárfesting í heilbrigði og vellíðan starfsfólks Gígja Valgerður Harðardóttir skrifar Skoðun Munar þig um 5-7 milljónir árlega? Jón Pétur Zimzen skrifar Skoðun Keldnaland – fjölmenn hverfi í mótun Þorsteinn R. Hermannsson skrifar Skoðun Eflum traustið Helgi Áss Grétarsson,Marta Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Börn í gámaskólum á meðan bæjarskrifstofur stækka – hvar er forgangsröðin? Ásgeir Elvar Garðarsson skrifar Skoðun Hver er kjarninn í samfélagi sem selur hjarta sitt? Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Seljum börnum nikótín! Hugi Halldórsson skrifar Skoðun Sundrung á vinstri væng Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Þegar samfélagið missir vinnuna Hrafn Splidt Þorvaldsson skrifar Skoðun Akademískt frelsi og ókurteisi Kolbeinn H. Stefánsson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgð hins fullorðna á hegðun ungmenna í samfélaginu? Rakel Guðbjörnsdóttir skrifar Skoðun Yfir hverju er verið að brosa? Árni Kristjánsson skrifar Skoðun Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson skrifar Skoðun Stjórnvöld sem fjárfestatenglar Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Ákall til ESB-sinna: Hvar eru undanþágurnar? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Er ég ömurlegt foreldri ef ég segi nei við barnið mitt? Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun Vindorkuvæðing í skjóli nætur Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þátttökuverðlaun Þórdísar Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Fjármálaráðherra búinn að segja A Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hagfræði-tilgáta ómeðtekin Karl Guðlaugsson skrifar Skoðun Ótryggt aðgengi á Veðurstofureit Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Börn í gámaskólum á meðan bæjarskrifstofur stækka – hvar er forgangsröðin? Ásgeir Elvar Garðarsson Skoðun
Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson Skoðun
Heilsufarsmat á vinnustöðum: Góð fjárfesting í heilbrigði og vellíðan starfsfólks Gígja Valgerður Harðardóttir Skoðun
Skoðun Heilsufarsmat á vinnustöðum: Góð fjárfesting í heilbrigði og vellíðan starfsfólks Gígja Valgerður Harðardóttir skrifar
Skoðun Börn í gámaskólum á meðan bæjarskrifstofur stækka – hvar er forgangsröðin? Ásgeir Elvar Garðarsson skrifar
Skoðun Hvar liggur ábyrgð hins fullorðna á hegðun ungmenna í samfélaginu? Rakel Guðbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson skrifar
Börn í gámaskólum á meðan bæjarskrifstofur stækka – hvar er forgangsröðin? Ásgeir Elvar Garðarsson Skoðun
Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson Skoðun
Heilsufarsmat á vinnustöðum: Góð fjárfesting í heilbrigði og vellíðan starfsfólks Gígja Valgerður Harðardóttir Skoðun