Kaffidrykkja íslenskra barna er staðreynd! Steinar B. Aðalbjörnsson skrifar 3. ágúst 2011 06:15 Ég vissi að ég myndi fanga athygli þína með ofangreindum titli en hann er ekki alveg rökréttur, eða hvað? Á Íslandi tíðkast það sem betur fer ekki að börn og unglingar séu sötrandi kaffi. Hvers vegna er það gott að börn og unglingar drekka ekki kaffi? Í kaffinu eru ýmis efni sem við viljum ekki að börnin okkar fái og ber þar helst að nefna efnið koffín sem bæði er örvandi og ávanabindandi. Kaffi- og gosdrykkja á Íslandi er býsna algeng og súkkulaðiát með mesta móti. Í nánast öllu dökku gosi og súkkulaði er koffín. Því myndi margur spyrja hvort viðbót af koffíni sé einhver skaðvaldur? Svarið við þeirri spurningu er einfaldlega já og á engan hátt ásættanlegt að við gerum illt verra og bætum enn frekar við koffínneysluna hjá íslenskum börnum og unglingum. Undirritaður skrifaði grein í Morgunblaðið um koffín fyrir nokkrum árum en nú er svo komið að þörf er á að fjalla aftur um koffín því neysla barna og unglinga á orkudrykkjum, stútfullum af koffíni, hefur aldrei verið meiri. Áður en lengra er haldið er mikilvægt að skilgreina hvað orkudrykkir eru og hvað þeir eru ekki, því mikils ruglings gætir meðal foreldra um þetta. Ekki er til formleg skilgreining á orkudrykkjum en þeir eiga það allir sameiginlegt að innihalda ansi mikið magn af koffíni. Þeir eru oftast í 250 eða 500 ml álstaukum en Egils Orka er þó undantekning en hún er seld í plasti. Flestir orkudrykkir eru einnig með viðbættum vítamínum og nokkrir með ginsengi og guarana sem er uppspretta koffíns. Dæmi um orkudrykki eru Red Bull, Euroshopper, Burn, Cult og Orka. Mikilvægt er að benda á að Powerade, Gatorade, Soccerade og fleiri slíkir drykkir í 500 ml plastflöskum, oft í aðlaðandi litum, eru ekki orkudrykkir. Þessir drykkir kallast kolvetna- eða íþróttadrykkir og eru ætlaðir til notkunar í íþróttum þar sem svitatap er töluvert. Mjólkur-/próteindrykkir, t.d. Hámark, sem gott getur verið að neyta strax eftir erfiða æfingu eða í einstaka skipti sem millimál, eru heldur ekki orkudrykkir. Sama má segja um gosdrykki þó svo að magn koffíns sé oft ansi hátt í gosdrykkjum. Orkudrykkir eru ýmist sykurlausir (með sætuefnum) eða stútfullir af sykri. Um koffínEn hvað er það við koffín sem er svo slæmt? Koffín er efni sem viðurkennt er til matarframleiðslu um allan heim. Oft er það sett í matvæli sem bragðefni en einnig eru dæmi um að koffín sé sett í matvöru vegna virkni efnisins á líkamann og eru orkudrykkir gott dæmi um slíkt. Mörg mismunandi sjónarhorn koma iðulega fram þegar talið berst að koffíni. Jack James var í viðtali í Fréttablaðinu 20. nóvember 2010 þar sem hann reifaði skaðsemi/skaðleysi koffíns. Hann benti réttilega á að það væri vitað að koffín hækkaði blóðþrýsting, það gæti haft áhrif á virkni ýmissa lyfja og þegar þess væri neytt í of miklu magni gæti það haft neikvæð áhrif á fóstur. En það er fleira sem benda má á varðandi koffínneyslu. Neysla og ofneysla koffíns getur valdið höfuðverk, svima, kvíða, einbeitingarleysi, auknu þvaglosi, óþægindum í meltingarvegi, breytingum á hegðun og ógleði. Í einhverjum tilfellum hafa menn ráðlagt fólki frá því að neyta koffíns og áfengis saman en mögulegt er að slíkt geti leitt til alvarlegra hjartsláttartruflana. En hvers vegna er orkudrykkja þá neytt ef áhrifin af koffíni eru svona slæm? Það er vegna örvandi áhrifa þess á miðtaugakerfið og eru sterkustu rökin fyrir áhrifumkoffíns á líkamann bundin við þennan þátt. Þegar fólk neytir koffíns, t.d. með drykkju orkudrykkja, þá hressist það. Það eru hins vegar skammtímaáhrif og oft er fólk þreyttara þegar áhrif koffíns dvína en áður en þess var neytt. Ávinningur neyslunnar er því í raun enginn. Er þá einhver ástæða til þess að gefa börnum okkar og unglingum orkudrykki? Nei, alls ekki, og hafa ber í huga að áhrif koffíns á líkamann eru á hvert kílógramm líkamsþyngdar og því eru áhrifin mun meiri á smáa líkama en stóra. Auk þess eru orkudrykkir oftast fullir af sykri og ekki er á bætandi í sykurneyslu barna og unglinga á Íslandi. Gaman er að nefna að ef neyslumynstur barna og unglinga á gosdrykkjum myndi breytast og í stað hefðbundinna gosdrykkja myndu þau t.d. drekka Klettakók þá gæti maður fært rök fyrir því að sykurneysla þessa hóps yrði helminguð! Hér er gert ráð fyrir því að börn og unglingar „þyrftu“ ennþá að drekka gos þó að best væri að sleppa því. En hvernig má þetta vera? Með því að skipta um tegund þá er sykurneyslan helminguð? Í kóki frá Klettagosi er meira en helmingi minna af sykri en í öðru slíku gosi frá hinum framleiðendunum. Það munar um minna þegar allir þessir þúsundir lítra renna, ár hvert, ofan í börnin okkar og unglingana! Foreldrar: Hvers vegna leyfum við börnunum okkar að drekka ígildi kaffis? Tja, og reyndar rúmlega ígildi því hefðbundinn orkudrykkur inniheldur oft meira magn koffíns en hefðbundinn kaffibolli auk þess sem flestir orkudrykkir innihalda líka mikinn sykur og óþarfa magn af vítamínum og öðrum örvandi efnum. Sýnum ábyrgð og fylgjumst með börnunum okkar! Við endurtökum ekki uppeldi þeirra! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason Skoðun Ekki sprengja börn! Ellen Calmon Skoðun Skoðun Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Linsa Lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson skrifar Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Sjá meira
Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar