Eftirlitsmyndavélar settar upp í Dalnum 3. ágúst 2011 08:00 Páll Scheving Ingvarsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar.
Páll Scheving Ingvarsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, vill láta setja upp eftirlitsmyndavélar í Herjólfsdal fyrir næstu Þjóðhátíð. Hann segir slíkt geta haft forvarnargildi og aðstoðað lögregluna í rannsóknum á afbrotum sem eigi sér stað. Fimm nauðganir voru tilkynntar til neyðarmóttöku sjúkrahúsa eftir Þjóðhátíð í ár og hafa tvær þeirra verið kærðar til lögreglu. Í einu tilviki var maður handtekinn í Herjólfsdal og úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag. Í öðru máli hefur lögregla mann grunaðan en ekki í haldi. „Ég held að sá tímapunktur sé kominn að setja upp eftirlitsmyndakerfi í Herjólfsdal. Svæðið er ekki stórt. Það yrði öflug forvörn og getur aðstoðað við að upplýsa mál,“ segir Páll og bætir við að nefndin líti nauðgunarmálin grafalvarlegum augum. Næsta skref sé að fara yfir málin, skoða hvernig þau séu vaxin og sjá hvernig brugðist hafi verið við þeim. Hann segir aðkomu Stígamóta eða Nei-hreyfingarinnar mögulega á næstu Þjóðhátíð. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir of snemmt að segja til um hvort nauðgunarmálin hafi verið fleiri en þau sem nú þegar hefur verið tilkynnt um. „Á þessum tíma vitum við aldrei neitt. Þær sem koma til okkar gera það miklu seinna. Engin þeirra hefur haft samband enn sem komið er,“ segir Guðrún og bætir við að verði þjónustu Stígamóta óskað á næstu Þjóðhátíð, verði slíkt vel tekið til greina. „Forvarnastarf á að vera sýnilegt á hátíðum sem þessum. Það getur bæði haft forvarnagildi og svo getur það skapað traust þeirra sem á þurfa að halda,“ segir hún. Finnborg Salome Steinþórsdóttir, talskona Nei-hreyfingarinnar, tekur undir orð Guðrúnar og segir það ólíðandi að fólk sé ekki óhult á útihátíðum. Hún segir það vissulega koma til greina að Nei-hreyfingin mæti á næstu útihátíð í Vestmannaeyjum, verði þess óskað. Ein nauðgun var tilkynnt eftir helgina á Akureyri og ein tilraun til nauðgunar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Sjá meira