Skrítin stemmning hjá Byr og Íslandsbanka 25. nóvember 2011 19:14
Alþingi samþykkti í gær sölu á hlut ríkisins í Byr til Íslandsbanka og munu bankarnir tveir sameinast undir merkjum Íslandsbanka. Sameiningin kallar á uppsagnir hjá báðum bönkum en ekki er enn ljóst hversu mörgum verður sagt upp en talið að um sé að ræða nokkra tugi starfsmanna. Starfsfólk BYR og Íslandsbanka er uggandi yfir fyrirhuguðum uppsögnum vegna samruna bankanna að sögn formanna starfsmannafélaga bankanna. „Það er mjög skrítin stemmning hér í dag og við hugsum að fólk sé stressað og allir hugsa náttúrulega bara um hvað verður um sig," segir Rebekka Helga Sveinsdóttir formaður starfsmannafélags Byrs. Anna Karen Hauksdóttir, formaður starfsmannafélags Íslandsbanka segir að fólki hafi ekki orðið eins mikið úr verki. „Fólk hefur pínu áhyggjur og hefur svolítið verið að tala saman á kaffistofunum í dag, það verður eiginlega að segjast." Tilkynnt var í gær að útibú Byrs í Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Akureyri og Borgartúni verða sameinuð útibúum Íslandsbanka í næsta nágrenni en útibúin í Kópavogi og í Árbæ verða áfram starfrækt á sama stað. Uppsagnir í höfuðstöðvum fara fram í næstu viku en beðið verður með sameiningu útibúa fram yfir áramót svo þeir starfsmenn þurfa að vera í óvissu lengur. „Auðvitað hefði kannski verið bara best að gera þetta í einu lagi og þá er því bara lokið en þeir sem að koma til með að vera í hópnum eftir áramót þeir vita þá allavega af því." Þær segja þó að ákveðinni óvissu hafi verið eytt í gær með samþykki samrunans og vonast til að eftir sameiningu verði bankinn enn sterkari. „Þarna eru að koma tveir flottir bankar saman og við teljum okkur hafa sterkt starfsfólk þar og góðan anda þannig að það eru líka tækifæri framundan vonum við." segir Anna Karen.
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Sjá meira