Erlent

Sólarorka að nóttu til

Yfir 2.600 speglar eru notaðir í Gemasolar verkefninu.
Yfir 2.600 speglar eru notaðir í Gemasolar verkefninu.
Vísindamenn á vegum Spánar og Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna hafa reist fyrstu sólarorkustöðina sem starfar allann sólarhringinn.

Stöðinn ber heitið Gemasolar og er staðsett við Seville á Spáni. Rúmlega 2.600 speglar þrýsta geislum sólarinnar saman til að mynda ofurheitt salt. Saltvökvinn heldur nægilegum varma til að mynda rafmagn í allt að 15 klukkutíma.

Gemasolar er hannað til að framleiða 20 megavött af rafmagni, slíkt magn orku getur knúið borg með yfir 100.000 íbúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×