Spáir því að verðbólgan fari í 4,7% í júlí 13. júlí 2011 13:43
Greiningin Arion banka spáir 0,2% verðhjöðnun í júlí, þ.e. 0,2% lækkun á vísitölu neysluverðs (VNV). Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan mælast 4,7% samanborið við 4,2% í júní. Lækkun þessi á verðlagi má fyrst og fremst rekja til tímabundinna áhrifa frá sumarútsölum sem koma nú fram af fullum þunga í þessum mánuði. Fjallað er um spána í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að helstu þættir séu sumarútsölur, eldsneytisverð, kjarasamningar og húsnæði. Síðustu árin hafa sumarútsölur lækkað verðlag um 0,5-0,7% í júlí. Sterk útsöluáhrif komu fram á sama tíma í fyrra en á þeim tíma var gengi krónunnar að styrkjast. Öfugt er upp á teninginn nú þar sem krónan hefur veikst að undanförnu og gerum við því ráð fyrir að útsölur verði í lakari kantinum þetta árið. Heildaráhrif -0,5%. Eldsneytisverð hefur hækkað á bæði bensíni og díselolíu um 2,5-3,5 krónur. Heildaráhrif +0,065%. Frá ársbyrjun hefur húsnæðisliðurinn haft rúmlega 0,7% áhrif til hækkunar á VNV – stór hluti þess má rekja til hækkunar á markaðsverði húsnæðis auk þess sem viðhald og viðgerðir hafa einnig haft sín áhrif. Greiningardeild gerir ekki ráð fyrir breytingum á þessari þróun og áfram muni húsnæðisliður hafa áhrif til hækkunar. Heildaráhrif +0,10%. Greina mátti veik merki þess efnis í síðustu verðmælingu Hagstofunnar að birgjar, kaupmenn og önnur fyrirtæki væru farin að ýta kostnaðarhækkunum út í verðlagið vegna kjarasamninga en fyrstu hækkanir áttu sér stað 1.júní sl. Greiningardeild gerir ráð fyrir sterkari áhrifum á næstu mánuðum. Nú þegar hefur verðlagsnefnd búvara stigið fram og tilkynnt gjaldskrárhækkun á mjólk og öðrum mjólkurafurðum 1. júlí nk. Greiningardeild gerir ráð fyrir að aðrir birgja og kaupmenn fylgi í kjölfarið. Heildaráhrif í júlí 0,05-0,10%. Síðan segir í Markaðspunktunum: „Ljóst er að barátta Seðlabankans til að viðhalda verðbólgu við markmið sitt er töpuð í bili. Ársverðbólgan hefur frá því í apríl mælst yfir 2,5% markmiði bankans og gangi bráðabirgðaspá okkar eftir er útlit fyrir að ársverðbólgan verði í kringum 5,5% í september. Hins vegar er mikilvægt að átta sig á því að sú verðbólga sem gengið hefur yfir má einkum rekja til hrávöruverðshækkana úti í heimi sem ómögulegt er fyrir Seðlabankann hér heima að sporna gegn. Til að bæta olíu á eldinn hafa aðrir innlendir þættir ýtt undir versnandi verðbólguhorfur eins og hinir títtnefndu kjarasamningar - sem Seðlabankinn varaði margoft við að samræmdist ekki verðbólgumarkmiði bankans. Þessu til viðbótar hefur fasteignamarkaðinn sýnt skýr merki um viðsnúning – en aukin umsvifin á þeim markaði eru ekki keyrð áfram á auknum útlánum í kerfinu heldur með eigin fé fjárfesta og sparifé einstaklinga (sem m.a. má rekja til gjaldeyrishafta). Þá hefur krónan einnig verið í veikingarfasa á sama tíma. Barátta Seðlabankans við verðbólguna á næstu misserum er því heldur erfið og má deila um hvort hann hafi einhver tæki eða tól til að berjast við þá verðbólgu sem framundan er.“
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira