Stærsta innköllun frá upphafi - 60 þúsund flöskur með bláberjabragði Boði Logason skrifar 16. júní 2011 15:34 Hátt í sextíu þúsund Pepsi Max flöskur í hálfs lítra flöskum verða innkallaðar. Það er stærsta innköllun Ölgerðarinnar frá upphafi. Mynd/Samsett-Vísir.is "
Þetta kemur stundum fyrir, en þetta er það stærsta sem við höfum lent í frá upphafi," segir Friðjón Hólmbertsson framkvæmdastjóri sölusviðs Egils hjá Ölgerðinni, en fyrirtækið hefur kallað inn allt Pepsi Max í hálfs lítra flöskum framleitt 25. maí síðastliðinn. Ástæðan er sú að komið hefur í ljós að bláberjabragðefni blandaðist fyrir mistök í drykkinn. „Líklegasta skýringin á þessu er að áður en tappað var á Pepsi Max, var verið að tappa á Bláberja Kristal Plús. Það hefur orðið eitthvað eftir í blöndunarpottinum, og svo kemur Pepsi Max út í það og þá kemur smá bláberjabragð," segir Friðjón. „Þetta er ekkert skaðlegt - þetta er bara ekki rétta Pepsi Max-ið sem fólk þekkir." „Þetta eru hátt í sextíu þúsund flöskur, fimmtíu bretti. Þetta er innköllun á öllu landinu, þetta er stórt verkefni," segir hann en starfsmenn Ölgerðarinnar um allt land vinna nú að því að taka flöskurnar úr búðum. „Við þurfum að farga þessu öllu, málið er að þótt þetta sé ekkert vont, þá er þetta ekki rétta varan." Ölgerðin hefur beðið sölustaði á landsbyggðinni að setja Pepsi Max með best fyrir dagsetningunni, 25.10.11, til hliðar þar til hún verður sótt eftir helgina. „Ölgerðin leggur áherslu á 100% gæði og stöðugleika og innkallar því þessa vöru með hraði. Við biðjum viðskiptavini okkar innilegrar afsökunar á þessum mistökum og óþægindum," segir í tilkynningu frá Ölgerðinni. Þeir viðskiptavinir sem hafa keypt flösku með þessari dagsetningu geta farið í Ölgerðina og fengið venjulegt Pepsi Max í staðinn.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira