Íslenski boltinn

Bein netútvarpslýsing frá KR - Keflavík á visir.is

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Úr leik KR-inga á móti Blikum í fyrstu umferð.
Úr leik KR-inga á móti Blikum í fyrstu umferð. Mynd/Valli
Þrír leikir fara fram í kvöld í Pepsi-deild karla í fótbolta og lýkur þar með 2. umferð. Fylgst verður með gangi mála í öllum leikjum kvöldsins á Boltavaktinni á visir.is og leikur FH og Breiðabliks verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.

Sú nýbreytni verður á visir.is að leik KR og Keflavíkur verður í beinni netútvarpslýsingu þar sem Valtýr Björn Valtýsson mun lýsa gangi mála í Frostaskjólinu. Aðeins er hægt að ná þessari útsendingu á visir.is.

Það má heyra lýsinguna með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×