Lífið

Umhverfis jörðina: Brunar eins og vindurinn á nýja mótorhjólinu

Sighvatur Bjarnason heldur áfram ferð sinni umhverfis jörðina á 80 dögum til styrktar Umhyggju og er nú komið að 12. kafla ferðasögunnar.

Hann brunar hér í þrjá daga eins og hann eigi lífið að leysa um þjóðvegi Indlands á leið sinni yfir til Nepal. Hann staldrar við í bænum Tansen í mið-Nepal og setur stefnuna yfir til Katmandu og Tíbet.

Haldið áfram að fylgjast með ferðalagi Sighvats hér á Vísi en hann sendir nokkrum sinnum á viku myndbönd af ferðalaginu.

Við minnum á söfnunarsímann en Sighvatur er að safna áheitum fyrir tvö sumarhús, sem sniðin eru sérstaklega að þörfum langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Söfnunarsímanúmerin eru þrjú: 903-5001 til að gefa 1.000 krónur. 903-5002 til að gefa 2.000 krónur. 903-5005 til að gefa 5.000 krónur.

Nánari upplýsingar um söfnunina er hægt að fá á heimasíðu Umhyggju. Kíkið einnig á Umhverfis jörðina á 80 dögum.

.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×