Umhverfis jörðina á 80 dögum

Fréttamynd

Náði umhverfis jörðina á 80 dögum

Ferðalag Sighvats Bjarnasonar hefur eflaust ekki farið framhjá lesendum Vísis síðustu mánuði. Í lok febrúar hélt hann af stað í ferðalag umhverfis jörðina til styrktar Umhyggju, félagi langveikra barna, og hefur hann reglulega sent Vísi myndbönd þar sem hægt hefur verið að fylgjast með framgangi mála. Sighvatur setti sér alls kyns krefjandi reglur, sem gerðu það að verkum að hann gat ekki leyft sér að hoppa á milli flugvéla heldur fór hann landleiðina að mestu.

Lífið
Fréttamynd

Fastur í fljótabát og aðeins fimm dagar eftir

Nú er aldeilis farið að síga á seinni hluta ferðalags Sighvats Bjarnasonar umhverfis jörðina á 80 dögum. Hann er búinn að vera 75 daga á leiðinni og þarf að hafa sig allan við til að ná niður til Ríó og fljúga heim til Íslands.

Lífið
Fréttamynd

Umhverfis jörðina: Brunar eins og vindurinn á nýja mótorhjólinu

Sighvatur Bjarnason heldur áfram ferð sinni umhverfis jörðina á 80 dögum til styrktar Umhyggju og er nú komið að 12. kafla ferðasögunnar. Hann brunar hér í þrjá daga eins og hann eigi lífið að leysa um þjóðvegi Indlands á leið sinni yfir til Nepal. Hann staldrar við í bænum Tansen í mið-Nepal og setur stefnuna yfir til Katmandu og Tíbet.

Lífið
Fréttamynd

Sighvatur kaupir mótorhjól og ætlar að keyra til Nepal

Sighvatur Bjarnason heldur áfram ferð sinni umhverfis jörðina á 80 dögum til styrktar Umhyggju. Sighvatur finnur sér vélhjól í Delhí og keyrir yfir til Katmandu í Nepal. Hann lendir í vandræðum með að komast út úr Delhí en þar kemur snjallsíminn hans til bjargar. Sighvatur er einnig hæstánægður með nýja hjólið enda sannkallaður kostagripur á spottprís.

Lífið
Fréttamynd

Umhverfis jörðina: Ferðaþreytan segir til sín í Pakistan

Sighvatur Bjarnason heldur áfram ferð sinni umhverfis jörðina á 80 dögum til styrktar Umhyggju. Hann er nú kominn yfir til Pakistan og fer meðal annars til borgarinnar Karachi sem hann segir þá brjáluðustu sem hann hefur komið til. Þá tekur við 30 klukkustunda rútuferð í gegnum Pakistan.

Lífið
Fréttamynd

Ferðin umhverfis jörðina farin að taka á

Sighvatur Bjarnason lagði af stað í ferðalag til styrktar Umhyggju fyrir tveimur vikum og ætlar umhverfis jörðina á 80 dögum. Lesendur Vísis hafa fylgst grannt með ferðalaginu enda sendir Sighvatur myndbönd af gangi mála þrisvar í viku. Sighvatur skrifar einnig reglulega á Facebook-síðu verkefnisins en í síðasta hluta ferðalagsins, þar sem hann heldur áfram frá Kenýa, lenti hann í miklum vandræðum.

Lífið
Fréttamynd

Umhverfis jörðina á 80 dögum á Vísi

Vísir frumsýnir í dag fyrsta myndbandið frá ferðalagi Sighvats Bjarnasonar, sem ætlar umhverfis jörðina á 80 dögum. Hann lagði af stað í gær frá Keflavík og sendi myndbandið frá Höfðaborg í dag.

Lífið