Konur 86 prósent þeirra sem misstu vinnuna Karen Kjartansdóttir skrifar 23. febrúar 2011 18:39
86 prósent þeirra sem misstu vinnuna vegna niðurskurðar í heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni eru konur. Sérkennilegur afrakstur fyrstu kynjuðu hagstjórnarinnar segir þingmaður. Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra við fyrirspurn um fækkun starfa á heilbrigðisstofnunum vegna niðurskurðar á fjárlögum 2011. Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður Framksóknarflokksins sem lagði fram fyrirspurnina sagði í viðtali við fréttstofu að þessi svör sýni að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu bitni fyrst og fremst á konum þar sem þær sinni yfirleitt umönnunarstörfum á borð því þau sem eru í boði á heilbrigðisstofnunum. Á landsbyggðinni séu störf á þessum stofnunum auk þess oft meðal fárra tækifæra sem bjóðist háskólamenntunum konum og niðurskurður hafi því líklega í för með sér frekari atgervisflótta af landsbyggðinni. Þá sé áhugavert sé að skoða þessar niðurstöður í ljósi þess að þetta sé afrakstur fyrstu kynjuðu hagstjórnarinnar. Meðal þess sem fram kemur í svarinu er að á Heilbrigðisstofnun Austurlands missir einn karl vinnuna en tíu konur. Hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi missa þrír karlar vinnuna en 32 konur. Á Suðurnesjum kemur ekki fram nein fækkun starfmanna á heilbrigðisstofnuninni. Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða missa fjórir karlar starfið og sjö konur. Hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands - missir einn karl starfið og ellefu konur. Í Þingeyjarsýslu missa þrír karlar starfð og tíu konur á heilbrigðisstofnuninni. Á Blönduósi missir einn karl og þrjár konur störf sín. Í Fjallabyggð missir einn karl vinnuna og tíu konur. Á Patreksfirði eru hluföllin jöfn en það missir einn karl og ein kona vinnuna. Á Sauðárkróki virðist enginn karl missa vinnuna en tvær konur. Og í Vestmannaeyjum missir enginn karl vinnuna sitt en sex konur. Alls missa 15 karlar því starf sitt en 92 konur.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Fleiri fréttir Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti Sjá meira