Ólafur Ragnar útnefndur maður ársins í Kryddsíldinni 31. desember 2011 15:00
Maður ársins að mati Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis er Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Skemmst er frá því að segja að fáir hafa komið jafn afgerandi við sögu í fréttum á árinu og hann - ekki einungis á innlendum vettvangi heldur líka erlendum. Ólafur Ragnar hefur áður markað djúp spor í sögu íslensku þjóðarinnar. Umdeild spor myndu sumir segja - og dýpkaði þau svo enn frekar þegar hann neitaði að samþykkja Icesavelögin snemma á árinu og vísaði valdinu þar með aftur til þjóðarinnar. Kjörtímabili forsetans líkur á næsta ári. Ólafur Ragnar var spurður að því hvort hann ætlaði að bjóða sig fram að nýju þegar hann tók við viðurkenningunni. „Sú spurning hefur líka brunnið á mér. Ég hef velt því fyrir mér á undanförnum mánuðum út af mínum, út frá sjónarmiðum Dorritar og fjölskyldunnar allrar," sagði Ólafur Ragnar. Ólafur Ragnar sagði að ákvörðunin væri ekki einföld ákvörðun. Hann vildi ekki segja hvort hann myndi opinbera ákvörðun sína í nýársávarpi á morgun en hann myndi samt sem áður fjalla um málið. „Ég mun vissulega fjalla um það - ég mun ekki skjóta mér undan því," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. Þegar Ólafur Ragnar var inntur eftir áliti hans um niðurstöðuna í þjóðaratkvæðagreiðsluna í Icesave málinu sagði hann að samningurinn sem var felldur í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi verið mun betri samningur en sá sem var felldur í fyrri þjóðaratkvæðagreiðslunni og það hefði ekki verið óeðlilegt ef þjóðin hefði samþykkt hann.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira