Endurmat í kjölfar kosninga 5. júní 2010 05:00 Jóhanna Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson fögnuðu ákaft þegar þau voru kjörin formaður og varaformaður á landsfundi flokksins í fyrra. Nú er kallað eftir skarpari pólitík hjá flokknum. fréttablaðið/daníel
Fréttaskýring: Hvernig stendur Samfylkingin eftir kosningarnar? Alls tapaði Samfylkingin nokkru fylgi í kosningunum og þó forsvarsmenn hennar horfi til smærri sveitarfélaga úti á landi, þar sem árangur var betri og sigrar unnust, verður ekki horft fram hjá fylgistapinu. Það verður að einhverju leyti skýrt með þátttöku í ríkisstjórn á erfiðum tímum, en flokksmenn kalla margir hverjir eftir endurmati. Þrátt fyrir skellinn í kosningunum segja margir heimildarmenn blaðsins að niðurstaðan hafi verið viðunandi. Okkur gekk ágætlega, er viðkvæði sumra, en þeir áttu þá von á enn verri úrslitum. Þeir benda á þá staðreynd að Vinstri græn töpuðu einnig fylgi, þrátt fyrir að flokknum verði trauðla kennt um hrunið. Ríkisstjórnarsamstarfið skýri því niðurstöðuna, ekki aðkoma flokksins að hruninu. Þó niðurstaðan hafi ekki komið mönnum í opna skjöldu skók hún marga. Samfylkingarfólki svíður að Sjálfstæðisflokkurinn landi meirihlutum jafn víða og raun ber vitni. Engu að síður er hugur í þeim flokksmönnum sem Fréttablaðið ræddi við. Ljóst er að úrslit kosninganna í Reykjavík eru flokknum gríðarleg vonbrigði. Samfylkingin hlaut þar 19,1 prósent atkvæða og þrjá borgarfulltrúa. Flokkurinn tapaði einum fulltrúa frá kosningunum 2006, en þá hlaut flokkurinn 26,9 prósent atkvæða. Það þótti ekki ásættanlegur árangur og því er tapið nú flokknum erfitt. Ekki hjálpar til að varaformaðurinn, Dagur B. Eggertsson, leiðir listann í Reykjavík. Niðurstaðan þar þykir hafa veikt hann í sessi, en gott gengi flokksins í nýju meirihlutasamstarfi við Besta flokkinn gæti styrkt stöðu hans á ný. Skortur á framtíðarsýn er það sem heimildarmenn blaðsins nefna helst sem galla hjá flokknum. Það eigi í raun bæði við um menn og málefni. Flokkurinn þurfi að leggjast yfir pólitíkina sína og skerpa á áherslum. Hann þykir ekki hafa nægilega skýra stefnu og hafa tapað tiltrú hluta kjósenda sinna. Nokkur mótsögn er í því að margir flokksmenn telja að skerpa þurfi á forystunni, en eru engu að síður mjög ánægðir með Jóhönnu Sigurðardóttur sem formann. Hún er einn fárra stjórnmálamanna sem enn nýtur trausts. Morgunljóst er þó að hún er á leið út úr pólitík, það er aðeins spurning um hvenær hún yfirgefur sviðið. Óljóst er hver tekur við. Ef meirihlutasamstarf Samfylkingar og Besta flokksins verður farsælt gæti staða Dags styrkst. Aðrir sem nefndir eru til sögunnar eru helst þeir Árni Páll Árnason og Guðbjartur Hannesson. Hvorugur þeirra er líklegur til að bjóða sig fram gegn sitjandi varaformanni. Niðurstaða kosninganna er vissulega ekki góð fyrir Samfylkinguna, en hún þykir að mörgu leyti viðunandi. Ástandið er því talið ágætt hjá flokknum og náist að skerpa á ýmsum atriðum eru menn bjartsýnir á að flokknum gangi vel. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira