Vel skipulagt kynlífshneyksli Playboy-kanínu 7. maí 2010 13:15 Skandall segja blöðin vestra en allt bendir til þess að Playboy-kanínan Kendra sé með í ráðum.
Í lok maí er von á kynlífsmyndbandi frá fyrrum Playboy-kanínunni Kendru Wilkinson í óþökk stjörnunnar. Ekki er allt sem sýnist og margt bendir til þess að hún hafi lagt blessun sína á útgáfuna - þrátt fyrir hótanir um málsókn. Klámframleiðandinn Vivid tilkynnti í vikunni útgáfu kynlífsmyndbands með sjónvarpsstjörnunni Kendru Wilkinson í aðalhlutverki. Lögfræðingar Kendru sendu í kjölfarið frá sér yfirlýsingu um að myndbandið væri raunverulegt, en allra leiða yrði leitað til að koma í veg fyrir útgáfu þess. Kendra er þar með komin í hóp stjarna á borð við Paris Hilton og Kim Kardashian. Þær skutust reyndar báðar upp á stjörnuhimininn í kjölfar myndbanda sem sýndu þær stunda kynlíf með þáverandi kærustum sínum, eins furðulega og það hljómar. Tilkynning lögfræðinga Kendru er áþekk þeim sem lögfræðingar Parisar og Kim sendu frá sér á sínum tíma. Myndbönd þeirra komu engu síður út og stúlkurnar sömdu um að fá hluta af hagnaðinum. Myndbandið sem kom þessu öllu af stað, One Night in Paris. Samkvæmt bandarískum vefmiðlum er nær öruggt að myndbandið komi út, þrátt fyrir yfirlýsingar Kendru. Af hverju? Jú, í Bandaríkjunum eru lög sem kallast 2257. Samkvæmt þeim er ólöglegt að gefa út kynlífsefni fólks, án þess að fá frá því undirskrift sem sannar að það hafi verið 18 ára eða eldri þegar efnið var framleitt. Það er því ómögulegt að hin fjölmörgu ólöglegu kynlífsmyndbönd íbúa Hollywood hefðu komið út án undirskriftar og samþykkis þeirra sem fram komu í myndböndunum. Það rennir stoðum undir þá kenningu, að hótanir um málshöfðanir séu hluti af hannaðri atburðarás til að kynna myndböndin. Kendra á að hafa verið 18 eða 19 ára þegar myndbandið var tekið upp, en „mótleikari" hennar er óþekktur. Myndband Kim Kardashian skaut henni upp á stjörnuhimininn, eins undarlega og það hljómar. Samkvæmt tilkynningu Vivid fékk klámframleiðandinn myndbandið frá þriðja aðila og hyggst gefa það út í lok maí. Áður en það gerist má búast við stórum yfirlýsingum úr herbúðum Kendru, sem endar á því að báðir aðilar semja um að hún fái greiddar fúlgur fjár gegn því að láta dómsmál niður falla. Þetta er nákvæmlega það sem gerðist í nóvember í fyrra þegar Vivid hugðist gefa út kynlífsmyndband með leikkonunni og fyrirsætunni Shaunu Sand. Hún tók svo þátt í kynningarstarfi myndbandsins.atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira