Óvenju lágt hlutfall í launakostnað hjá Hraðbraut 14. desember 2010 12:21 Ólafur H. Johnson, skólastjóri og eigandi menntaskólans Hraðbrautar
Aðeins 37% af rekstrarútgjöldum menntaskólans Hraðbrautar eru laun. Í framhaldsskólum á vegum ríkisins er hlutfall launakostnaðar að jafnaði tvöfalt hærra eða um 75%. Þetta kemur fram í skýrslu menntamálanefndar um Hraðbraut en í henni eru stjórnendur skólans harðlega gangrýndir fyrir meðferð sína á opinberum fjármunum. Í skýrslu menntamálanefndar um Hraðbraut kemur fram að samkvæmt þjónustusamningi menntamálaráðuneytisins við skólann skuli skuli árlega fara fram uppgjör þar sem áætlanir um nemendafjölda og fjárframlög ríksins eru bornar saman við rauntölur. Slíkt uppgjör hefur þó aldrei farið fram á þeim átta árum sem skólinn hefur verið starfræktur, þrátt fyrir að skólinn og ráðuneytið hafi vitað að nemendafjöldi við skólann væri ekki í takti við fjárframlög og að skólinn hafi ítrekað fengið hærri greiðslur en hann átti rétt á samkvæmt samningi. Skuld skólans við ríkissjóð vegna þessara ofgreiddu framlaga nemur 192 millj. kr. en skólinn var rekinn með 13 milljón króna halla í fyrra en það var eina árið þar sem samræmi var á milli framlaga úr ríkissjóði og raunverulegs nemendafjölda. Það er að segja þegar engur ofgreiðslur úr ríkissjóði eru til staðar skilar skólinn tapi. Í niðurstöðum skýrslu menntamálanefndar kemur fram rík áhersla á að Hraðbraut beri að endurgreiða þær 192 milljónir sem skólinn fékk ofgreiddar frá ríkinu. Ekki sé fullnægjandi að skuld skólans við ríkið verði greidd til baka með því að kenna fleiri nemendum en greitt er fyrir eins og forsvarsvmenn Hraðbrautar hafa lagt til. Meirihluti menntamálanefndar gerir athugasemd við að óvenju lágu hlutfalli af rekstrarútgjöldum skólans sé varið í laun og launatengd gjöld borið saman við opinbera framhaldsskóla. Samkvæmt ársreikningi Hraðbrautar fyrir árið 2007 var launakostnaður ekki nema 37% af rekstrarútgjöldum skólans. Í framhaldsskólum á vegum ríkisins er hlutfall launakostnaðar að jafnaði tvöfalt hærra eða um 75% af rekstrarútgjöldum. Það mál gæti reyndar haft afleiðingar því kennarasambandið er með dómsmál í undirbúningi á hendur hraðbraut vegna þess að það telur skólinn greiði kennurum lægri laun en kjarasamningar kveða á um.. Meirihluti menntamálanefndar segir að þegar tekið sé tillit til þess að skólinn skili tapi þegar hann fá greitt samkvæmt samningi í stað endalausra ofgreiðslana sé rekstrargrundvöllur hans ótraustur. Og í ljósi þeirra alvarlegu ásakana sem fram koma í garð eigenda skólans í skýrslu Ríkisendurskoðunar um meðferð þeirra á opinberu fjármagni segist meirihlutinn ekki geta mælt með því að þjónustusamningur ráðuneytisins við Hraðbraut verði endurnýjaður.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira