Innlent

Christian Wulff kosinn forseti Þýskalands

SB skrifar
Christian Wulff, nýr forseti Þýskalands.
Christian Wulff, nýr forseti Þýskalands.

Eftir dramatískan dag á þýska þinginu var Christian Wulff kosinn forseti Þýskalands í þriðju umferð kosninganna milli hans og Joachim Gauk. Kosningin reyndi bæði á samstarf samsteypustjórnar kristilegra og frjálslyndra demókrata og framtíð Angelu Merkel sem kanslara.

Angela Merkel lagði starf sitt að veði þegar hún tefldi Christian Wulff fram sem kandítat stjórnarinnar í starf forseta Þýskalands eftir að Horst Köhler sagði af sér sem forseti eftir ummæli sem hann lét falla um veru þýska hersins í Afganistan.

Í kjölfarið tefldu græningjar og Sósíal demókratar Joachim Gauk fram sem fulltrúa sínum til embættis forseta. Gauk er þekktur baráttumaður frá Austur Þýskalandi og hafði meðal annars yfirumsjón með opnun Stasi skjalanna eftir fall Austur-þýsku kommúnistastjórnarinnar. Christan Wulff er helst þekktur fyrir að vera óumdeildur.

Reynt hefur á samstarf Svart Gulu stjórnarinnar svokölluðu síðustu vikur og hefur stórblaðið Spiegel meðal annars birt myndir af Angelu Merkel og Guido Westerwelle, Utanríkisráðherra Þýskalands, á forsíðu blaðsins undir fyrirsögninni: Hættið.

Það var því mikil pressa á Angelu Merkel í dag þegar kosningarnar á þinginu fóru fram og þykir það til marks um veika stöðu hennar að ekki tókst að knýja fram úrslit fyrr en í þriðju umferð kosninganna.

Hefðu kosningarnar farið á annan veg er líklegt að Angela Merkel hefði þurft að segja af sér og stjórnarkreppa tekið við í Þýskalandi.

Angela Merkel, sagði nú fyrir skömmu í Tagesschau, að hún væri mjög ánægð með niðurstöðuna þrátt fyrir erfiðan dag á þinginu. "Ég er viss um að Þýskaland hefur eignast góðan forseta," sagði hún.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×