Gæti fengið sextán ára fangelsi 6. febrúar 2010 06:00 Sakborningurinn leiddur fyrir dómara.
Brot karlmanns sem situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróf kynferðisbrot gegn fjórum unglingsstúlkum, sem hann kynntist í gegnum Facebook, varða allt að sextán ára fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þess efnis að maðurinn sitji í gæsluvarðhaldi til 3. mars. Þrjú þessara brota eru komin til ríkissaksóknara og hið fjórða á leiðinni. Að auki hefur ríksisaksóknari til meðferðar mál er varðar vörslu mannsins á barnaklámi. Kynferðisbrotamál mannsins gegn stúlkunum fjórum komu til kasta lögreglu í árslok 2009 með stuttu millibili og eiga það sammerkt að meintir brotaþolar eru ungar stúlkur undir lögaldri, þar af tvær undir kynferðislegum lögaldri. Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum enda hafi maðurinn yfirburði í aldri og þroska fram yfir stúlkurnar. Þá endurspegli það aukinn ásetning mannsins að hann láti ekki segjast og hafi ekki liðið nema vika frá því að ákærði hafi verið yfirheyrður vegna meints kynferðisbrots gegn ungri stúlku og þar til hann hafi sett sig í samband við fjórðu stúlkuna. - jss
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira