Lífið

Þolir ekki Handler

Óvinkonur Courteney Cox þolir ekki spjallþáttastjórnandann Chelsea Handler og hefur meðal annars kallað hana „hvítt hyski“. Nordicphotos/getty
Óvinkonur Courteney Cox þolir ekki spjallþáttastjórnandann Chelsea Handler og hefur meðal annars kallað hana „hvítt hyski“. Nordicphotos/getty

Leikkonan Courteney Cox þolir ekki nýju vinkonu Jennifer Aniston, spjallþáttastjórnandann Chelsea Handler, og hefur hvatt Aniston til að binda enda á þennan nýja vinskap.

Samkvæmt tímaritinu Enquirer er Cox mjög ósátt við Handler og hefur meðal annars kallað hana „hvítt hyski".

Handler þessi vakti mikla athygli þegar hún blótaði Angelinu Jolie í sand og ösku í uppistandi sínu nýlega. Þetta uppistand átti sér stað stuttu eftir að Handler eyddi heilli viku með Aniston í Mexíkó og því halda margir að Aniston sé enn miður sín vegna skilnaðar síns við Brad Pitt.

„Courteney þolir ekki Chelsea og finnst röflið í henni láta Aniston líta illa út. Courteney er líka enn góð vinkona Brads og tekur því ekki létt þegar fólk talar illa um barnsmóður vinar síns," var haft eftir heimildarmanni.

Sá sagði einnig að Aniston væri þegar orðin þreytt á Handler því sú síðarnefnda væri stanslaust að gera lítið úr henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×