Bachelorette til Íslands 18. mars 2010 05:45 Væntanleg til Íslands Ali Fedotowsky er væntanleg til Íslands ásamt nokkrum draumaprinsum úr raunveruleikaþáttaröðinni Bachelorette. Einn þáttur verður tekinn upp hér á Íslandi og segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri þetta geta verið mikla landkynningu fyrir Ísland. Mikil leynd hvílir yfir því hvar og hvenær þættirnir verða teknir upp hér á landi.
Einn þáttur úr bandarísku raunveruleikaþáttaseríunni Bachelorette verður tekinn upp hér á landi innan tíðar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun framleiðslufyrirtækið Pegasus þjónusta bandaríska tökuliðið meðan á dvöl þess hér á landi stendur, en um er að ræða gríðarlega stórt verkefni sem tugir manna munu koma að. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst hafa Bandaríkjamennirnir hug á því að taka upp rómantískar senur með þátttakendum víðs vegar um landið og því ljóst að um verður að ræða mikla landkynningu, sennilega á pari við þá sem Amazing Race hafði árið 2004 þegar þátturinn var tekinn upp hér á landi. Um það bil þrettán milljónir Bandaríkjamanna horfa á hvern þátt Bachelorette. Þegar Fréttablaðið hafði samband við Pegasus var engin svör að fá varðandi þetta verkefni. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst hvílir mikil leynd yfir tökunum og verður öllum sem að þeim koma gert að skrifa undir sérstakt trúnaðarskjal enda má ekkert kvisast út hvaða heppnu piparsveinar fá að koma til Íslands og hverjir verða dottnir úr leik á þessum tímapunkti. Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri segir að mikil landkynning fyrir Ísland felist í því að vinsæll þáttur sem þessi sé tekinn upp hér. „Áhorfendahópurinn að þætti á borð við þennan er einmitt sá hópur frá Norður-Ameríku sem lítur hýru auga til Íslands," segir Ólöf en það eru vel menntaðar konur á aldrinum 18-35 með góðar tekjur. „Það að svona þáttur skuli horfa til Íslands getur því bara verið jákvætt. Við höfum séð þessi dæmi að bæði Bachelor og Bachelorette hafa haft áhrif á ferðaþjónustu víða um heim," segir Ólöf og bendir meðal annars á tölur frá Nýja-Sjálandi. Þar fjölgaði heimsóknum á heimasíðu Ferðamálastofu Nýja-Sjálands um 110 prósent eftir að þáttur sem tekinn var þar upp var sýndur. Fyrir aðdáendur þessara vinsælu stefnumótaþátta er rétt að kynna til leiks stúlkuna sem leitar að ástinni á Íslandi. Hún heitir Ali Fedotowsky og var ein aðalstjarnan í síðustu Bachelor-þáttaröðinni. Fram kemur á heimasíðu ABC-sjónvarpsstöðvarinnar að hún sé mikil framakona en hafi jafnframt áhuga á knattspyrnu og útivist, eitthvað sem ætti að nýtast henni vel þegar hún kemur til Íslands og kynnir sér náttúru Íslands. Á heimasíðunni kemur jafnframt fram að fyrsti þátturinn verði frumsýndur mánudaginn 24. maí. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira