Viðskipti innlent

Samson átti endurfjármögnun vísa í sjóðum Landsbankans

Björgólfur Guðmundsson og sonur hans, Björgólfur Thor Björgólfsson. Þeir áttu saman fjárfestingarfélagið Samson.
Björgólfur Guðmundsson og sonur hans, Björgólfur Thor Björgólfsson. Þeir áttu saman fjárfestingarfélagið Samson.
Félög tengd eigendum Landsbankans áttu endurfjármögnun vísa í Peningabréfum ISK, en svo nefndist fjárfestingasjóður Landsvaka sem aftur var í eigu Landsbankans. Þetta er meðal þess sem lesa má úr kafla rannsóknarnefndar Alþingis um verðbréfa- og fjárfestingasjóði.

Þar segir meðal annars að fjárfestingarstefna Peningabréfa í krónum var sögð mjög rúm. „Raunar er erfitt að túlka fjárfestingarstefnu sem hefur svo víð vikmörk sem stefnu af nokkru tagi. Sjóðstjóra eru lítil takmörk sett með svo rúmri stefnu og draga verður þá ályktun að líklega hafi verið fremur einfalt að framfylgja henni," segir í áliti nefndarinnar.

„Áhugavert er að skoða hversu stóran hluta sjóðurinn átti í einstökum flokkum verðbréfa sem gefin voru út af stærstu skuldunautum sjóðsins sem tengdust Landsbankanum," segir í áliti nefndarinnar þar sem bent er á að Sjóðurinn hafi aukið fjárfestingu í bréfum Landsbankans í lok mars 2008 þegar hann keypti fyrir 17 milljarða króna í víxilútgáfu sem var tveggja mánaða víxill að nafnvirði 30 milljarðar króna. Af þeirri útgáfu keypti sjóðurinn fyrir 18 milljarða að nafnverði eða 60 prósent allrar útgáfunnar. Á gjalddaga þess víxils fékk sjóðurinn endurgreidda 18 milljarða en keypti samdægurs fyrir 12 milljarða króna að nafnvirði í annarri verðbréfaútgáfu. „Framlengdi í raun og veru stóran hluta skuldarinnar. Sjóðurinn endurtók leikinn allt til falls bankanna, fjárfesti í skammtímavíxlum Landsbankans fyrir 12 til 17 milljarða króna að nafnvirði eða fyrir um 10 prósent af heildarverðmæti sjóðsins í hvert skipti.

Þá kemur fram að sjóðurinn hafi að jafnaði haldið um níu milljörðum króna í bréfum Samson, eignahaldsfélags Björgólfsfeðga sem fór með eign þeirra í Landsbankanum. „Af stærstu útgáfunum eftir október 2007, þegar fyrri útgáfur voru framlengdar, má sjá þrjár stórar útgáfur, SAMS 07 3, SAMS 07 5 og SAMS 07 6, þar sem Peningabréf keyptu alla frumútgáfu bréfanna. Því má segja að Samson hafi átt vísan aðgang að endurfjármögnun að hluta hjá sjóðnum. Svipaða sögu er að segja af fjárfestingum tengdum Straumi-Burðarási," segir í skýrslunni.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×