Skoðun

Davíð Stefánsson: „Ég er bara venjulegur maður / og yfirleitt sæll og glaður ... “

Davíð Stefánsson skrifar

Titill þessarar greinar er tilvitnun í ógleymanlegan söngtexta Helga, persónulega trúbadorsins, úr sjónvarpsþáttunum Fóstbræðrum sem ég held mikið upp á. Ég nota frasann sem titil vegna þess að undanfarna daga hef ég undarlega oft þurft að svara því til að víst sé ég venjulegur maður.

Fyrir rúmu ári ákvað ég formlega að taka til starfa fyrir þann stjórnmálaflokk sem stendur mér næst í hugmyndafræði - Vinstrihreyfinguna-grænt framboð. Ég gerði það á þeim forsendum að ég hefði eitthvað fram að færa sem gæti gagnast samfélaginu, ég vildi bjóða mig fram til þjónustu. Ég bauð mig fram sem venjulegur maður sem hafði fengið nóg. Núna, hins vegar, dugir þetta ekki lengur til.

Núna, þegar búið er að tala niður í svaðið allt sem heitir skipulagt stjórnmálastarf, er búið að setja alla sem starfa innan stjórnmálaflokka í einn og sama hrærigrautinn. Tala um þá sem flokksdindla. Tala um þá sem „stjórnmálastétt". Tala um þá sem valdagíruga. Alla.

Og það er frekar pirrandi, satt best að segja, jafnvel þótt það sé að nokkru leyti skiljanlegt í ljósi hegðunar vissra flokka undanfarin ár.

Hvar er „venjulegt fólk" í framboði?

Þangað til fyrir nokkrum árum var Sóley Tómasdóttir „venjuleg kona" sem vann hjá ÍTR. Þangað til fyrir nokkrum árum var Þorleifur Gunnlaugsson „venjulegur" dúklagningarmaður. Líf Magneudóttir er ennþá „venjuleg" kona sem vinnur við vefstjórn. Elín Sigurðardóttir er „venjulegur" verkefnastjóri hjá Klúbbnum Geysi. Hermann Valsson er „venjulegur" íþróttakennari.

Sjálfur er ég ósköp „venjulegur" vitleysingur sem lærði bókmenntafræði fyrir nokkrum árum og vinn á leikskóla, ásamt því að ritstýra, prófarkalesa, kenna skapandi skrif og skrifa námsefni.

Við sem skipum efstu sætin á lista VG fyrir komandi kosningar erum venjulegt fólk sem hefur óvenjumikinn áhuga á samfélaginu og stjórnmálum.

Við erum ekki spillt. Við erum ekki heilaþvegin af flokksforystunni - við mótum þvert á móti stefnu VG með þrotlausu starfi og endalausum fundum. Við bjóðum okkur ekki fram vegna fríðinda eða launa - við bjóðum okkur fram vegna þess að við trúum því að íslenskt samfélag þurfi að byggja á félagshyggju, umhverfisvernd og femínisma.

Það kann að vera að innan allra flokka finnist vitleysingar sem eru reknir áfram af annarlegum hvötum. Það er líklega óhjákvæmilegt að slíkt hendi í stórum félagsskap.En að halda því fram að „venjulega fólkið" sé hvergi að finna innan flokkakerfisins er mikil og varasöm einföldun.

Davíð Stefánsson

5. sæti á lista VG til borgarstjórnar í Reykjavík.






Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×