Sex safaríkir safnpakkar 3. desember 2010 12:00 flottir safnpakkar Fjöldi veglegra safnpakka kemur út hjá Senu fyrir jólin. Lögum Ómars Ragnarssonar, Bubba, Kristjáns Jóhanns, Ellyjar Vilhjálms og Ólafs Gauks verður meðal annars gert hátt undir höfði.
Sena gefur út fjölda stórra safnplatna fyrir jólin. Bubbi, Ómar Ragnars, Kristján Jóhanns, Elly Vilhjálms, Ólafur Gaukur og Spilverkið fá öll að njóta sín í stórum og veglegum umbúðum. Safnplötuútgáfa Senu er blómleg fyrir þessi jól, eins og svo oft áður. Þreföld safnplata með helstu lögum Ómars Ragnarssonar, Ómar í hálfa öld, hefur að geyma 72 lög frá fimmtíu ára ferli þessa mikla skemmtikrafts. Lögin voru tekin úr 300 laga safni þar sem Ómar er annaðhvort höfundur lags eða texta eða hvort tveggja. Fjöldi söngvara og hljómsveita kemur við sögu, þar á meðal Vilhjálmur Vilhjálmsson, Hljómar, Björgvin Halldórsson og Diddú. „Ómar varð sjötugur núna um daginn. Hann var í samvinnu með okkur að velja lögin á plötuna og hún endaði í þremur diskum,“ segir Höskuldur Höskuldsson hjá Senu. „Það gera sér ekki margir grein fyrir því hvað Ómar á mikið af textum, til dæmis Sveitapiltsins draumur, Ástarsorg með Elly og Villa og Árið 2012 með Villa.“ Bubbi, góðvinur Ómars, er einnig á ferðinni með safnpakkann Bubbi, Sögur af ást, landi og þjóð, sem hefur að geyma þrjár plötur og einn mynddisk. Þarna er að finna safn bestu laga Bubba frá þrjátíu ára ferli hans. Fimmtán laganna voru valin af þjóðinni í gegnum Visir.is og varð Rómeó og Júlía þar hlutskarpast. Mynddiskurinn hefur að geyma fimmtíu myndbönd sem flest hafa ekki verið gefin út áður og einnig tónleikaupptökur. „Þetta er í fyrsta skipti sem það kemur út safnplata með Bubba, bæði með sólótónlist og böndunum hans. Þetta er mjög eigulegur pakki,“ segir Höskuldur. Í safnpakkanum þrefalda, Heyr mína bæn, eru sextíu vinsælustu lög Ellyjar Vilhjálms. „Elly hefði í desember orðið 75 ára. Hún er ein ástsælasta söngkona sem Ísland hefur alið og þetta er í fyrsta skipti sem það kemur út þriggja diska safn með henni,“ útskýrir Höskuldur en söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir valdi lögin á plöturnar. „Þarna fylgir með veglegur bæklingur með mörgum áður óbirtum myndum úr einkasafni fjölskyldunnar. Það var algjör fjársjóður að fá þær myndir.“ Enn ein þrefalda útgáfan er safn 55 laga með tenórnum Kristjáni Jóhannssyni sem nefnist Il grande tenore. Þarna eru lög frá fjörutíu ára ferli söngvarans og kennir þar ýmissa grasa. Lög úr hinum ýmsu óperum koma við sögu, auk laga á borð við Jalousie og Spanish Eyes, og tók Kristján þátt í að velja réttu lögin. Í næstu viku er væntanleg tveggja diska safnplata með lögum Ólafs Gauks. Bæði eru þar lög sem hann spilaði með hljómsveit sinni og lög þar sem hann hefur átt textana. Plötur Spilverks þjóðanna koma einnig út í sjöföldum safnpakka um miðjan desember og verður það væntanlega mikill fengur fyrir íslenska tónlistaráhugamenn. Ein platan verður með áður óbirtu efni og með útgáfunni fylgir spikfeitur hundrað blaðsíðna bæklingur. freyr@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Sjá meira