Innlent

Uppsagnir á RÚV draga úr mætti fréttamiðla

Blaðamannafélag Íslands sendi frá sér ályktun vegna uppsagna á RÚV í dag. Hún er svohljóðandi:

Blaðamannafélag Íslands harmar fjöldauppsagnir á Ríkisútvarpinu en stórt skarð er höggvið í raðir fjölmiðlafólks með þessari ákvörðun. Uppsagnirnar bætast við blóðugan niðurskurð á einkamiðlunum og draga máttinn úr fréttamiðlum á sama tíma og aðstæður í samfélaginu kalla á öflugar og gagnrýnar fréttir.

Í hópi þeirra fréttamanna sem missa vinnuna eru sumir elstu og reyndustu fréttamenn stofnunarinnar, stjórnendur tveggja vinsælla fréttaskýringaþátta í úvarpi og sjónvarpi og landsbyggðarfréttamenn.

Atburðir dagsins í dag á Ríkisútvarpinu auka enn á það óöryggi sem fjölmiðlafólk býr við en það er síst til þess fallið að treysta aðhaldshlutverk fjölmiðla.

Þá sendi einnig Félag fréttamanna á RÚV frá sér eftirfarandi ályktun:

Yfirlýsing frá stjórn Félags fréttamanna vegna niðurskurðar á Fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Vegna þeirrar ákvörðunnar Alþingis að hirða tíunda hluta útvarpsgjaldsins hafa nú um fimmtíu starfsmenn Ríkisútvarpsins misst vinnuna. Sumir voru launamenn en aðrir verktakar, langflestir í fullu starfi og stór hluti vann á Fréttastofunni, bæði í Reykjavík og úti á landi. Stjórn Félags fréttamanna harmar að nú sé ráðist í þriðja sinn á stuttum tíma að Fréttastofu Ríkisútvarpsins með blóðugum niðurskurðarhnífi.

Stutt er frá því helsta tekjustofni Ríkisútvarpsins var breytt með lögum frá Alþingi úr því að vera afnotagjald sem stofnunin innheimti sjálf, yfir í að vera nefskattur sem ríkið innheimtir með öðrum sköttum. Blekið var varla þornað á hinum nýju lögum þegar Alþingi ákvað að taka hluta nefskattsins til sín. Þessi óheiðarlega framkoma löggjafasamkundunar er með ólíkindum, einkum þegar haft er í huga að á sama tíma styrkir ríkið aðra fjölmiðla um milljarða króna með niðurfellingum skulda í gegnum opinbera banka.

Ljóst er að geta Fréttastofunnar til faglegrar og vandaðrar umfjöllunar er verulega sködduð vegna vanhugsaðra ákvarðanna Alþingis og ríkisstjórnar. Sjaldan hefur þó verið meiri þörf á vönduðum og áræðanlegum fréttum en nú. Stjórn félags fréttamanna spyr hvort tilgangurinn sé að draga svo mátt úr Fréttastofunni að hún verði ófær um að sinna lögbundnu og lýðræðislegu eftirlits- og aðhaldshlutverki sínu?

Ábyrgðin hvílir á herðum ríkisstjórnarinnar og Alþingis, sem nú hafa opinberað algert virðingarleysi sitt fyrir Ríkisútvarpinu, hlutverki þess, starfsfólki og eigendum. Sérhver alþingismaður ber persónulega ábyrgð á uppsögnunum.

Stjórn félags fréttamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×