Fótbolti

Buffon: Moreno var uppdópaður á HM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gianluigi Buffon.
Gianluigi Buffon.

Gianluigi Buffon var fljótur til að skjóta á Byron Moreno, fyrrverandi knattspyrnudómara, sem var handtekinn með sex kílógrömm af heróíni í sínum fórum í Bandaríkjunum.

Moreno dæmdi viðureign Ítalíu og Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum HM árið 2002. Halla þótti mjög á ítalska liðið í leiknum en Suður-Kórea komst áfram eftir að hafa skorað gullmark í framlengingu.

„Sex kíló af eiturlyfjum? Mér finnst líklegt að Moreno hafi verið með svo mikið í líkamanum sínum árið 2002 - ekki í nærbuxunum," sagði Buffon í samtali við ítalska fjölmiðla í dag.

„En öllu gríni slepptu þá er hætt við því að þegar fólk úr íþróttaheiminum snýr sér að eiturlyfjum að þá verði botninum náð og íþróttin líður fyrir það."






Tengdar fréttir

Knattspyrnudómari tekinn með heróín

Ekvadorinn Byron Moreno, fyrrum knattspyrnudómari, var handtekinn á JFK-flugvellinum í New York með sex kílógrömm af heróíni í sínum fórum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×