Eyðum óvissunni Ólína Þorvarðardóttir og Guðbjartur Hannesson skrifar 11. mars 2010 06:00 Á liðnum vikum hafa samtök útgerðarmanna gengist fyrir fundaherferð gegn áformum stjórnvalda að gera breytingar á framtíðarskipan fiskveiðistjórnunarinnar með innköllun og endurúthlutun fiskveiðiheimilda á tuttugu árum. Þau áform byggja á fyrirheiti því sem báðir stjórnarflokkar gáfu fyrir síðustu kosningar og stjórnarsáttmálinn kveður á um. Útvegsmönnum virðist mikið í mun að sannfæra almenning um að afleiðing fyrirhugaðra breytinga muni verði hrun greinarinnar á örfáum árum. Það vekur athygli við þennan málflutning að um leið og LÍÚ kallar eftir nákvæmri útfærslu og talar um „óþolandi óvissu“ um hana, telja samtökin sig geta spáð gjaldþroti greinarinnar verði innköllunarleiðin farin. Margt í þeim málflutningi byggir á augljósum misskilningi og/eða ranghermi. Skal nú vikið að því helsta. Fullyrt hefur verið að ætlunin sé að „taka af“ útgerðinni þær fiskveiðiheimildir sem hún hefur nú yfir að ráða og „keypt“ á liðnum árum. Hafa menn notað orð eins „eignaupptöku“ og „þjófnað“. Í hinu orðinu segja sumir að þeim hafi alltaf verið ljóst að fiskveiðiheimildirnar séu ekki eign heldur einungis nýtingarréttur. Gott og vel. Sé hið síðarnefnda tilfellið, er enginn ágreiningur þarna. Stjórnvöld hafa aldrei hugsað sér að taka neitt af neinum, heldur að treysta í sessi eignarhald þjóðarinnar yfir auðlind sinni til að eyða allri óvissu og tryggja í framkvæmd ákvæði 1. gr. fiskveiðistjórnunarlaga en þar segir: „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar“. Stjórnvöld telja einnig mikilvægt að koma inn í stjórnarskrá lýðveldisins ákvæði um eignarhald þjóðarinnar á náttúruauðlindum, þ.m.t. sjávarauðlindinni. Þá vilja stjórnvöld skapa sanngjarnar og eðlilegar leikreglur í þessari atvinnugrein og ná sátt við þjóðina, en ekki aðeins LÍÚ, um fiskveiðistjórnunarkerfið. Allar breytingar sem gerðar verða eiga að tryggja „trausta atvinnu og byggð í landinu“ eins og stendur í sömu grein. Þannig er að sjálfsögðu gert ráð fyrir því að smærri og stærri útgerðir landsins muni veiða fiskinn í sjónum , eftir sem áður, enda hafa þær tækin og reynsluna. Fullyrt hefur verið að stjórnvöld ætli með breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu að svipta grunninum undan rekstri sjávarútvegsfyrirtækja enda muni innköllun og endurúthlutun fiskveiðiheimildanna gjörbylta rekstrarforsendunum. Ekkert er fjær sanni. Það segir sig sjálft að íslenskur sjávarútvegur er undirstöðuatvinnugrein sem efnahagslífið þarf á að halda. Útvegurinn nytjar eina mikilvægustu auðlind þjóðarinnar. En það er auðvitað sanngirnismál að arðurinn af þeim afnotum skili sér í þjóðarbúið, til samfélagsins sem ól þessa atvinnugrein af sér en fari ekki út úr greininni eða í vaxtagreiðslur til bankanna. Vel rekinn sjávarútvegur, hagkvæm nýting auðlindarinnar, sjálfbærni og sanngjarnar leikreglur hljóta að vera sameiginlegt markmið allra í íslenskum sjávarútvegi. . Þau útvegsfyrirtæki sem eru vel rekin og hafa hagað sér skynsamlega í fjárfestingum eru og eiga að vera samfélagsstólpar. „Greinin verður að geta fjárfest og viðhaldið sér“ sagði framkvæmdastjóri FISK-Seafood á fundi sem LÍÚ hélt nýlega á Grand-Hotel í Reykjavík. Það eru orð að sönnu. Úthlutun nýtingarréttar veiðiheimilda til langs tíma, t.d. 15 - 20 ára myndi skapa útgerðunum stöðugri rekstrarskilyrði en nú eru, með möguleikum á langtímaáætlunum. Samhliða þarf að tryggja eðlilegan leigumarkað þannig að þeir sem ekki þurfa að veiða þær aflaheimildir sem þeim er úthlutað skili þeim aftur inn í “auðlindasjóð“ þaðan sem aðrir eiga þess kost að leigja þær til sín á sanngjörnu verði, en ekki á því uppsprengda leiguverði sem hér hefur tíðkast. Afraksturinn af leigunni myndi nýtast til samfélagslegra verkefna. Þannig myndi samfélagið njóta góðs af leigutekjum veiðiheimildanna en ekki einungis handhafar kvóta. Nýtt fyrirkomulag myndi þýða mun minni fjárfestingakostnað fyrir útgerðirnar, lægra leiguverð og tryggari starfsskilyrði til framtíðar. Framkvæmdastjóri FISK-Seafood, Jón Eðvald Friðriksson, sem vitnað var til að ofan, hefur talað fyrir því að stjórnvöld geri samning við útgerðina til langs tíma um nýtingarrétt af veiðiheimildum. Hann segir að málið snúist um vinnufrið. Undir þetta getum við tekið heils hugar. Það hefur skort á vinnufriðinn að undanförnu, enda leiða hræðsluáróður og stríðsyfirlýsingar sjaldan til friðar. Verkefnið sem bíður okkar – hagsmunaaðila í sjávarútvegi ekki síður en stjórnvalda – er að eyða óvissunni. Til þess þurfa allir að nálgast viðgangsefnið af ábyrgð og ræða það málefnalega. Þeim útvegsmönnum fer fjölgandi sem viðurkenna rétt þjóðarinnar til þess að treysta í sessi forræði samfélagsins yfir auðlindinni. Um leið þurfa stjórnvöld að fallast á rétt fyrirtækjanna til þess að móta sér skynsamlega fjárfestingastefnu og traustari rekstrarforsendur. Síðast en ekki síst þarf að koma hér á fiskveiðistjórnunarkerfi sem meiri sátt ríkir um. Vankantar núverandi kerfis hafa haft alvarlegar afleiðingar fyrir margar byggðir landsins og leitt af sér mismunun og mannréttindabrot sem sjá má af hæstaréttardómum sem fallið hafa og úrskurði Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Það er því sanngirnismál, nú þegar endurreisa þarf íslenskt efnahagslíf, að þessi atvinnugrein komi að því verki eins og til er ætlast af öðrum ábyrgum aðilum, ekki síst í atvinnulífinu. Höfundar eru þingmenn Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson Skoðun Skoðun Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar Skoðun Geislameðferð sem lífsbjörg Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar