Skoðun

Hanna Birna Kristjánsdóttir: Barnamenningarhátíð hefst í dag

Hanna Birna Kristjánsdóttir skrifar
Langþráður draumur Reykjavíkurborgar um að halda sérstaka barnamenningarhátíð verður að veruleika við setningu fyrstu Barnamenningarhátíðar í Reykjavík í dag, en hátíðin verður haldin dagana 19. til 25. apríl.

Börnin í borginni fá þá daga einstakt tækifæri til að sýna hvað í þeim býr á hinum ólíku sviðum lista- og menningar en dagskráin er undirbúin af börnum, fyrir börn. Um 1.300 tíu ára börn taka þátt í setningarhátíðinni í Hljómskálagarðinum ásamt Fíusól, sirkuslistamönnum og götuleikhúsfólki. Að hátíðinni koma grunnskólar í borginni, leikskólar, tónlistar- og myndlistarskólar, bókasöfn, listasöfn og aðrar menningarstofnanir og svo fjölmargir aðrir með spennandi verkefni. Listsköpun barna verður sýnileg á óvæntum stöðum eins og á botni Vesturbæjarlaugar, á innkaupakerrum í matvöruverslunum og í Strætó. Leik- og grunnskólar borgarinnar munu iða af lífi með sýningum og opnum húsum þar sem foreldrum og öðrum aðstandendum barna verður boðið upp á spennandi dagskrá.

Börnin leggja land undir fót og taka yfir aðrar stofnanir en þeirra eigin á hátíðinni. Þannig syngur 300 leikskólabarna þjóðkór í Háskólabíó og nemendur úr Háteigsskóla frumflytja frumsamda óperu „Jörðina okkar“ í Hallgrímskirkju. Barnamenningarhátíðinni lýkur með stórum tónleikum með lögum af Vísnabókarplötunum Einu sinni var og Út um græna grundu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þann 25. apríl næstkomandi.

Þema hátíðarinnar að þessu sinni verður forvitni og kennir ýmissa forvitnilegra grasa í dagskránni. Ítarlegt yfirlit yfir alla dagskrárliði hátíðarinnar er aðgengilegt á slóðinni barnamenningarhatid.is.

Ég hvet fjölskyldur til að taka öflugan þátt í fyrstu Barnamenningarhátíðinni í Reykjavík og njóta þess hvað börnin okkar í borginni eru hugmyndarík, skapandi og skemmtileg.



Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×