Austurríki vann - Ísland öruggt áfram á EM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. janúar 2010 18:31 Roland Schlinger og félagar fóru á kostum í dag. Mynd/DIENER/Leena Manhart
Ísland er komið áfram í milliriðlakeppnina á Evrópumeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Austurríki. Þökk sé sigri heimamanna á Serbum í Linz í dag, 37-31, sitja Serbar eftir í neðsta sæti riðilsins með eitt stig. Austurríkismenn eru nú með þrjú stig og taka eitt stig með sér í milliriðlakeppnina. Það ræðst svo á eftir hvort Ísland fer með eitt, tvö eða þrjú stig með sér til Vínarborgar þar sem riðill Íslands fer fram í næstu viku. Ísland mætir Danmörku í lokaleik riðlakeppninnar hér í Linz. Serbar byrjuðu af krafti og komust í 4-0. Þeir voru með undirtökin lengst af í fyrri hálfleik en eins og áður í þessarri keppni gáfust Austurríkismenn einfaldlega ekki upp. Viktor Szilagyi, fyrirliði og prímusmótor Austurríkismanna, fór á kostum á leiknum eins og í mótinu öllu. Hann er að stimpla sig inn sem einn allra besti leikmaður keppninnar. Hann fór fyrir sínum mönnum í ótrúlegum síðari hálfleik þar sem Austurríki breytti stöðunni úr 22-23 í 29-24 á aðeins átta mínútum. Þeir litu aldrei um öxl eftir það. Fagnaðarlætin sem brutust út í leikslok voru ótrúleg en fyrst og fremst einlæg. Austurríkismenn eiga þetta skilið. Varamarkvörðurinn Thomas Bauer var stórkostlegur í leiknum og varði mörg mikilvæg skot. Hann var valinn maður leiksins. Szilagyi skoraði níu mörk og hornamaðurinn Robert Weber átta. Hinn hornamaðurinn, Konrad Wilczynski, skoraði sex mörk. Sesum Zarko skoraði átta mörk fyrir Serbíu og Nenad Vuckovic sjö. Þjálfari Austurríkis er sem kunnugt er Dagur Sigurðsson og á hann mikið hrós skilið fyrir árangur liðsins í Linz.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira