Leikur aldarinnar í Austurríki Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 23. janúar 2010 15:45 Mynd/Diener/Leena Manhart
Austurríkismenn mæta í dag Serbíu í lokaumferð riðlakeppninnar á EM í handbolta og eiga góðan möguleika á að komast áfram í milliriðlakeppnina. Þökk sé jafnteflinu gegn Íslandi á fimmtudagskvöldið dugar Austurríki jafntefli gegn Serbíu í dag. Leikurinn hefst klukkan 17.00. Fjölmiðlar í Austurríki hafa vel fylgst með mótinu og sínum mönnum. Michael Gangel, fyrrum landsliðsmaður Austurríkis, skrifar í dálki sínum í Kurier-dagblaðinu í dag að leikurinn sé sá mikilvægasti sem Austurríki hafi spilað frá upphafi. „Leikur aldarinnar,“ segir í fyrirsögn hans. „Að baki leiksins í dag liggur tveggja ára vinna,“ skrifar hann og segist hafa trú á því að liðið geti gert góða hluti í leiknum í dag. „Leikmenn eru raunhæfir og gríðarlega einbeittir. Liðið er gríðarlega vel skipulagt sem er nauðsynlegt til að geta keppt á meðal þeirra bestu.“ Leikstjórnandinn Vitus Ziura segir þetta einstakt tækifæri fyrir austurrískan handbolta. „Þetta er tækifæri lífs okkar. Það fær okkur nú ekkert stöðvað,“ sagði hann við austurríska fjölmiðla. „Við höfum undirbúið okkur fyrir þetta í mörg ár,“ sagði hornamaðurinn öflugi Konrad Wilczynski. „Og við erum ekki draumóramenn. Við vitum vel hvað við getum.“
Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira