Ragna og Gylfi hætta Heimir Már Pétursson skrifar 31. ágúst 2010 18:31
Stokkað verður upp í ríkisstjórninni á næstu dögum, jafnvel strax á morgun eða þegar þing kemur saman á fimmtudag. Ráðherrum verður fækkað um tvo. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur rætt við flesta þingmenn Samfylkingarinnar í dag og stefnir að því að ræða við þá alla áður en dagurinn er liðinn. Allsherjarnefnd afgreiddi í morgun frá sér frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu og þar með eru allar líkur á að það verði að lögum á septemberþingi sem hefst á fimmtudag. Samkvæmt því verða heilbrigðis- og félags- og tryggingamálaráðuneyti sameinuð í velferðarráðuneyti og dóms- og samgönguráðuneyti í innanríkisráðuneyti. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða báðir utanþingsráðherrarnir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra látin fara. En Ögmundur Jónasson er sennilega á leið í ríkisstjórn fyrir Vinstri græna og Jón Bjarnason verður að öllum líkindum áfram ráðherra. Til að stjórnarflokkarnir hafi áfram hvor um sig fimm ráðherra þurfa Vinstri grænir að fórna einum og er talað um að það verði Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra. Talið er að Kristján Möller samgönguráðherra sé á leið út úr ríkisstjórn. Þá er líklegt að Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra verði áfram ráðherra og nýr ráðherra komi inn fyrir Samfylkinguna, og er Oddný Harðardóttir nefnd í því sambandi. Ráðherrarnir eru núna tólf en verða tíu að lokinni uppstokkun en allsherjarnefnd ætlar að taka sér meiri tíma í að undirbúa stofnun atvinnuvegaráðuneytis, en eftir það er stefnt að því að fækka ráðherrunum um einn til viðbótar eða í níu.
Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Fleiri fréttir Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Sjá meira