Lífið

Drengjakór Reykjavíkur stendur á tvítugu

Tónlist Drengjakór Hallgrímskirkju: syngja eins og englar.
Tónlist Drengjakór Hallgrímskirkju: syngja eins og englar.

Drengjakór Reykjavíkur fagnar í dag kl. 14 tvítugsafmæli kórsins síns með tónleikum í í Hallgrímskirkju.

Drengjakór Reykjavíkur var stofnaður 6. október 1990. Frá árinu 1994 hefur Friðrik S. Kristinsson, fjölmenntaður tónlistarmaður og uppalandi stjórnað kórnum. Hann stjórnar einnig Karlakór Reykjavíkur og kennir við Söngskóla Sigurðar Demetz. Lenka Matevoa, organisti Kópavogskirkju er einnig hámenntaður tónlistarmaður frá Tékklandi og er hún undirleikari kórsins.

Drengjakór Reykjavíkur er eini drengjakórinn hér á landi og starfar við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Kórinn syngur að jafnaði einu sinni í mánuði í messu á starfsárinu. Haldnir eru jóla- og vortónleikar og einnig kemur kórinn fram við mörg önnur hátíðleg tækifæri, jafnt utan kirkju sem innan.

Einkunnarorð kórsins eru „Syngja eins og englar, hegða sér eins og herrar og leika sér eins og strákar“. Í kórstarfi læra drengirnir að starfa saman, taka tillit til annarra og síðast en ekki síst fá þeir mikilsvert tónlistarlegt uppeldi, sem þeir búa að alla tíð bæði í leik og starfi. Margir fyrrverandi kórfélagar hafa haldið áfram tónlistarnámi sínu eftir að kórnum sleppir.

Drengjakór Reykjavíkur æfir reglulega tvisvar í viku. Á hverjum vetri er farið í æfingabúðir út fyrir höfuðborgarsvæðið. Við kórinn hefur frá upphafi starfað foreldrafélag sem heldur utan um starfsemi kórsins í samvinnu við stjórnanda hans. Foreldrafélagið sér um daglegan rekstur kórsins.

Tónleikahald er stór þáttur í starfi kórsins og er það metnaður drengjanna að tónleikar séu kórnum og þeim sjálfum ævinlega til sóma. Þeir vita að til þess að svo megi verða þurfa þeir að vinna mikið og vel! Söngstjórinn þarf að ráða yfir margslungnum galdri svo að þessi markmið náist ljúflega og í allri gleði. Og þannig nást þau í Drengjakór Reykjavíkur.

- pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.