Greining segir tilefni til meir en 0,5 prósentstiga vaxtalækkunnar 11. ágúst 2010 08:40
Greining Arion banka spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 0,5 prósentustig. Ástæður séu til enn meiri lækkunnar vaxtanna en greiningin telur að óvissan vegna gengisdóms Hæstaréttar komi í veg fyrir slíkt. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að hjöðnun verðbólgunnar síðustu mánuði hafi skapað verulegt svigrúm til frekari vaxtalækkunar. Hefur verðbólgan gengið hraðar niður en verðbólguspá Seðlabankans gerði ráð fyrir í síðustu Peningamálum og flestar aðrar hagstærðir hafa einnig verið að þróast til betri vegar frá síðasta vaxtafundi; krónan hefur haldið áfram að styrkjast, skuldatryggingarálag ríkisins lækkað og utanríkisviðskipti skilað áfram ágætum afgangi. „Þrátt fyrir þessi jákvæðu teikn, sem ættu að gefa tilefni til verulegrar vaxtalækkunar á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans þann 18.ágúst næstkomandi, þá spáir Greiningardeild samt sem áður aðeins 50 punkta vaxtalækkun (0,5%) í takt við fyrri vaxtaákvörðunarfundi bankans. Ástæðan má fyrst og fremst rekja til óvissunnar vegna gengisdómsins um ólögmæti gengistryggðra lána. Í því sambandi má vitna til orða seðlabankastjóra á síðasta vaxtaákvörðunarfundi um að vextir hefðu þá lækkað mun meira ef ekki væri þessi óvissa til staðar," segir í Markaðspunktunum. „Gangi spá okkar eftir munu innlánsvextir lækka í 6% og veðlánavextir 7,5%." „Athyglisvert er að skoða hvernig aðhald peningastefnunnar hefur verið að þróast í núverandi vaxtalækkunarferli samanborið við það síðasta sem stóð yfir á árunum 2001-2003. Raunstýrivextir segja til um aðhald peningastefnunnar og eru margar leiðir til að skoða raunstýrivexti. Hér er farin sú leið að meta raunstýrivexti út frá ársverðbólgu á hverjum tíma og meðaltali af virkum vöxtum Seðlabankans síðustu 12 mánuði. Á síðustu mánuðum hafa raunstýrivextir farið hækkandi og miðað við verðbólguhorfur er útlit fyrir að svo verði áfram út árið (af því gefnu að Seðlabankinn haldi sig áfram við 50 punkta taktinn). Það er ekki þar með sagt að raunstýrivextir fari ekki niður á ný, því eins og gerðist í síðasta lækkunarferli (2001-2003) þá lækkuðu raunvextir áfram mörgum mánuðum eftir að stýrivextirnir höfðu náð lágmarki sínu. Fjórir vaxtaákvörðunardagar hafa verið settir fram til ársloka. Hægt er að velta fyrir sér hvar Seðlabankinn muni nema staðar í vaxtalækkunum. Í síðasta lækkunarferli (2001-2003) enduðu stýrivextir í 5,2%. Þrátt fyrir að slakinn í þjóðarbúskapnum gefi tilefni til að vextir bankans fari enn neðar í núverandi lækkunarferli er samt ljóst að óumflýjanleg leysing gjaldeyrishafta hlýtur að hamla lækkunum. Að sama skapi takmarkast svigrúm nefndarinnar enn frekar af hinni óleystu Icesavedeilu. Ef við gefum okkur að Seðlabankinn haldi áfram sama 50 punkta taktinum út árið þá verða innlánsvextir bankans komnir í 4,5% í lok árs og veðlánavextir 6%," segir í Markaðspunktnum. „Hugsanlegt er því að lækkunarferlinu ljúki í desember, enda hefur Seðlabankastjóri gefið í skyn að vaxtagólfið liggi á bilinu 5-6%. Verði verðbólgan hins vegar í kringum núllið á næsta ári er ljóst að vextir Seðlabankans þurfa að fara enn neðar til að peningalegt aðhaldi aukist ekki á meðan."
Mest lesið Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Viðskipti erlent Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Viðskipti erlent „Þetta er ömurleg staða“ Viðskipti innlent Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap Viðskipti innlent Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Neytendur Sekta TikTok um tæpa áttatíu milljarða Viðskipti erlent Syndis kaupir Ísskóga Viðskipti innlent Fokdýr jólagjöf til dætranna reyndist eintóm blekking Neytendur Mikill samdráttur á pöntunum til kínverskra verksmiðja Viðskipti erlent Þau vilja stýra ÁTVR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Syndis kaupir Ísskóga Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap „Þetta er ömurleg staða“ Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hætta við að selja hlutina í Olíudreifingu Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís Rannsaka meint samkeppnisbrot Landsvirkjunar Staðfesta frávísun vegna stefnu Samskipa í samráðsmáli Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld Þau vilja stýra ÁTVR Býst ekki við að verðbólgan hafi áhrif á vaxtalækkunarferlið Um þrjátíu prósent hafa miklar áhyggjur af áhrifum tolla á Ísland Lauf Cycles lýkur tæplega 500 milljóna króna fjármögnun Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Ráðinn forstjóri Arctic Fish Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf Sjá meira