Körfubolti

NBA: LeBron spilaði aftur með Cleveland og Lakers vann Phoenix

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James í leiknum á móti Philadelphia í nótt.
LeBron James í leiknum á móti Philadelphia í nótt. Mynd/AP
LeBron James spilaði á ný með Cleveland Cavaliers í 100-95 sigri á Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og var með 23 stig, 10 stoðsendingar og 6 fráköst. James missti af tveimur síðustu leikjum liðsins. James hafði misst af tveimur síðustu leikjum toppliðs NBA-deildarinnar.

Mo Williams var með 21 stig fyrir Cleveland og Delonte West skoraði 17 stig en Andre Iguodala var með 30 stig fyrir Philadelphia og Elton Brand bætti við 24 stigum.

Kobe Bryant skoraði 20 stig, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar þegar Los Angeles Lakers vann 102-96 útisigur á Phoenix Suns. Það var jafnt stigaskor hjá Lakers í nótt því Andrew Bynum skoraði 18 stig og þeir Pau Gasol, Ron Artest og Derek Fisher voru allir með 15 stig. Amare Stoudemire var með 29 stig og 16 fráköst hjá Phoenix.

Paul Pierce var með 20 stig og Rajon Rondo bætti við 16 stigum og 11 stoðsendingum þegar Boston komst aftur á sigurbraut með 122-103 sigri á Indiana Pacers. Nate Robinson og Glen Davis voru líka báðir með 15 stig fyrir Boston í leiknum en liðið hafði tapaða tveimur leikjum í röð fyrir leikinn. Roy Hibbert skoraði 23 stig fyrir Indiana.

Jermaine O'Neal var með 25 stig og Quentin Richardson bætti við 23 stigum þegar Miami Heat vann 108-95 sigur á Chicago Bulls. Dwyane Wade var með 17 af 22 stigum sínum í seinni hálfleik í þessum sigri sem hjálpaði Miami að komast upp fyrir Toronto og í 7. sætið í Austudeildinni. Þetta var sjöunda tap Chicago í röð en liðið lék án þriggja stigahæstu manna sinna; Derrick Rose, Luol Deng og Joakim Noah.

Richard Jefferson fékk aftur að vera í byrjunarliði San Antonio Spurs eftir sjö leikja fjarveru og svaraði því með 19 stigum í 103-85 sigri á Minnesota Timberwolves. George Hill var með 19 stig og 8 stoðsendingar og Tim Duncan skoraði 15 stig og tók 8 fráköst.

Kevin Durant braut 30 stiga múrinn í 36.sinn á tímabilinu og skoraði 32 stig í 104-102 sigri Oklahoma City Thunder á New Jersey Nets. Þetta var 16. sigur Oklahoma City í síðustu 19 leikjum.

Will Bynum gaf 20 stoðsendingar og Svíinn Jonas Jerebko skoraði 18 stig þegar Detroit Pistons vann 101-87 sigur á Washington Wizards. Bynum varð þarna fyrsti Detroit-maðurinn til þess að brjóta 20 stoðsendinga múrinn síðan að Isiah Thomas afrekaði það árið 1985.

Carmelo Anthony var með 32 stig og 12 fráköst þegar Denver vann sinn fimmta sigur í röð nú 102-95 sigur á móti New Orleans Hornets.

Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:

Charlotte Bobcats-Los Angeles Clippers 106-98

Philadelphia 76Ers-Cleveland Cavaliers 95-100

Boston Celtics-Indiana Pacers 122-103

Miami Heat-Chicago Bulls 108-95

Detroit Pistons-Washington Wizards 101-87

Memphis Grizzlies-New York Knicks 119-112

Minnesota Timberwolves-San Antonio Spurs 85-103

New Orleans Hornet-Denver Nuggets 95-102

Oklahoma City Thunder-New Jersey Nets 104-102

Milwaukee Bucks-Utah Jazz 95-87

Phoenix Suns-Los Angeles Lakers 96-102

Sacramento Kings-Portland Trail Blazers 94-110






Fleiri fréttir

Sjá meira


×