Greining: Vextir lækka um 0,75 prósentustig í desember 1. desember 2010 13:46
Greining Arion banka spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 0,75 prósentustig þann 8.desember næstkomandi. Gangi spáin eftir verða vextir á viðskiptareikningum innlánastofnana 3,25%, hámarksvextir 28 daga innistæðubréfa 4,5% og veðlánavextir 4,75%. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að jákvæðar verðbólguhorfur munu skapa áframhaldandi svigrúm til vaxtalækkana á næstu vaxtafundum Seðlabankans að mati greiningarinnar. Verðbólgan hefur gengið hraðar niður en Seðlabankinn spáði fyrir um og útlit fyrir að slakinn í hagkerfinu verði meiri. Þá hefur Seðlabankinn breytt um tón hvað varðar tímasetningar um afnám gjaldeyrishafta og virðist flest benda til þess að þau vari um allangt skeið. „Í ljósi þessa teljum við að áherslur Peningstefnunefndar liggi nú fyrst og fremst í mikilvægi þess að ná raunvöxtum niður samhliða hjaðnandi verðbólgu eins og Seðlabankastjóri hefur imprað á," segir í Markaðspunktunum. „Það liggur nú fyrir að Seðlabankinn var of seinn að nýta sér höftin til þess að lækka vexti og vega þannig á móti gríðarlegum samdrætti í landsframleiðslu. Vaxtastig hefði átt að vera komið á þann stað þar sem það er nú fyrir ári síðan til þess að gefa peningalegum slaka færi á því að vinna á móti kreppunni. Eins og nú er komið málum á Íslandi skiptir það ekki höfuðmáli hvort verðbólga sé einu prósentustigi meiri eða minni en eitt auka prósentustig í hagvexti er eins og vatn í eyðimörk. Þessi glöp hljóta nú að vera meðlimum Peningastefnunefndarinnar ljós enda liggur nú fyrir að nokkuð er til þess að forsendur geti skapast fyrir afnámi hafta." Allir nefndarmenn studdu tillögu Seðlabankastjóra um 75 punkta vaxtalækkun á síðasta fundi Peningastefnunefndar þann 3. nóvember sl. „Að okkar mati er fátt í spilunum nú sem rökstyður minni skref en á þeim fundi. Í ljósi þess hversu lágir vextir eru nú þegar teljum við þó meiri líkur á því að Seðlabankinn haldi svipuðum takti á næsta fundi líkt og verið hefur á síðustu fundum. Því spáum við 75 punkta lækkun 8.desember næstkomandi," segir í Markaðspunktunum. Greiningin gerir jafnframt ráð fyrir því að vaxtalækkunarferlið haldi áfram á nýju ári en með hægari hraða. Þá segir í Markaðspunktunum að aðhald peningastefnunnar hefur minnkað frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi, þannig hafa raunvextir gengið niður á alla verðbólgumælikvarða. Hins vegar má auðveldlega færa rök fyrir því að raunvaxtastig á bilinu 3-4,5% sé allt of hátt miðað við að fjárfestingar eru í sögulegu lágmarki, svartsýni mikil og atvinnuleysi á uppleið á ný - m.ö.o. hagvaxtahorfur eru daprar. Seðlabankastjóri tekur í raun afdráttarlaust undir þetta í ræðu sinni á aðalfundi Sambands íslenskra sparisjóða í síðustu viku: „Peningastefnunefnd taldi í síðustu yfirlýsingu að svigrúm sé enn til staðar til frekari lækkunar seðlabankavaxta að því gefnu að gengi krónunnar haldist stöðugt og verðbólga hjaðni eins og spáð er. Nýjasta verðbólgumæling undirstrikar þetta svigrúm. Miðað við slakann í hagkerfinu eru virkir raunstýrivextir sem nema á bilinu 2-2½% einfaldlega of háir eftir að markmið um gengisstöðugleika og verðbólgu hafa náðst."
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira