Innlent

Þórólfur vill nýja Þjóðhagsstofnun

Hagstjórn hér á árunum fyrir hrun einkenndist af flokkssjónarmiðum, segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði. Fréttablaðið/Stefán
Hagstjórn hér á árunum fyrir hrun einkenndist af flokkssjónarmiðum, segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði. Fréttablaðið/Stefán

Eitt það helsta sem við höfum lært af bankahruninu er nauðsyn einnar stofnunar sem metur áhrif hins opinbera á hagkerfið. Það réttlætir endurstofnun Þjóðhagsstofnunar.

Þetta er mat Þórólfs Matthíassonar, prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands. Hann gagnrýndi hagstjórnarleg mistök ríkisstjórna og eftirlitsaðila á árunum 2003 til 2007 harðlega á hádegisfundi í Háskóla Íslands í vikunni þar sem fjallað var um lærdóminn af bankahruninu í kjölfar útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Í erindi sínu fór Þórólfur yfir ýmislegt upp úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem sagt er hafa aflaga farið, allt frá einkavæðingarferli bankanna á árabilinu 1998 til 2003.

Þórólfur taldi til ýmis hagstjórnarleg mistök stjórnvalda máli sínu til stuðnings, svo sem byggingu Kárahnjúkavirkjunar, hækkun á lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs, sem dró úr aðhaldi og olli háþrýstingi í hagkerfinu. Á svipuðum tíma sleppti Seðlabankinn krónunni á flot og innleiddi mistæk verðbólgumarkmið. „Í [þeim] felst gengisfestuloforð. Þetta hygg ég að menn hafi ekki gert sér grein fyrir,“ sagði hann og bætti við að þetta hafi vakið athygli spákaupmanna, sem sáu tækifæri í krónuviðskiptum.

Þórólfur sagði aðgerðir stjórnvalda bera vott um að vera kosningaloforð og stjórnmálaflokkarnir því látið flokkssjónarmið ganga framar hagsmunum landsins. Þetta, ásamt aðgerðum stjórnvalda, hafi valdið efnahagslegu ójafnvægi sem leiddi til hrunsins. „Við höfum áður búið við ónýta peningastefnu og höfðum gert áratugum saman. En skaðinn er miklu stærri en nokkurn tíma áður og enginn hafði fulla yfirsýn yfir afleiðingarnar af ónýtri peningamálastefnu, flokkshollri fjármálastefnu og Pótemkín-tjöldum bankanna,“ sagði Þórólfur. Slíkt gæti Þjóðhagsstofnun gert þótt tilmæli um endurreisn hennar séu ekki nefnd í skýrslu rannsóknarnefndarinnar, að hans sögn. jonab@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×