Innlent

Vinna að meira samræmi í skattaeftirliti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skúli Eggert Þórðarson er að samræma eftirlit með skattrannsóknum. Mynd/ Stefán.
Skúli Eggert Þórðarson er að samræma eftirlit með skattrannsóknum. Mynd/ Stefán.
Ríkisskattstjóri mun í næsta mánuði setja á fót nýja stóra eftirlitsskrifstofu. Þetta er liður í því að samræma eftirlit með skattskilum, að því er fram kom í þættinum Reykjavík síðdegis í dag.

„Við erum í næsta mánuði að setja á fót stóra eftirlitseiningu. Hún hefur verið þrískipt en nú verður þetta ein stór eining," segir Skúli Eggert. Þrjátíu manns muni starfa á þessari skrifstofu og að auki átta úti á landi. „Það er heilmikil endurskipulagning í gangi og mál þokast vel áfram. Þetta er núna komið á einn stað," segir Skúli Eggert. Á þessari skrifstofu verði saman komnir allir helstu sérfræðingar í skattaeftirliti og það ætti að þýða betri árangur.

Skúli Eggert segir að þessi hópur muni fyrst og fremst einbeita sér að atvinnurekstraraðilum, en ekki einstaklingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×