Uppsagnir á RÚV draga úr mætti fréttamiðla 22. janúar 2010 16:54
Blaðamannafélag Íslands sendi frá sér ályktun vegna uppsagna á RÚV í dag. Hún er svohljóðandi: Blaðamannafélag Íslands harmar fjöldauppsagnir á Ríkisútvarpinu en stórt skarð er höggvið í raðir fjölmiðlafólks með þessari ákvörðun. Uppsagnirnar bætast við blóðugan niðurskurð á einkamiðlunum og draga máttinn úr fréttamiðlum á sama tíma og aðstæður í samfélaginu kalla á öflugar og gagnrýnar fréttir. Í hópi þeirra fréttamanna sem missa vinnuna eru sumir elstu og reyndustu fréttamenn stofnunarinnar, stjórnendur tveggja vinsælla fréttaskýringaþátta í úvarpi og sjónvarpi og landsbyggðarfréttamenn. Atburðir dagsins í dag á Ríkisútvarpinu auka enn á það óöryggi sem fjölmiðlafólk býr við en það er síst til þess fallið að treysta aðhaldshlutverk fjölmiðla. Þá sendi einnig Félag fréttamanna á RÚV frá sér eftirfarandi ályktun: Yfirlýsing frá stjórn Félags fréttamanna vegna niðurskurðar á Fréttastofu Ríkisútvarpsins. Vegna þeirrar ákvörðunnar Alþingis að hirða tíunda hluta útvarpsgjaldsins hafa nú um fimmtíu starfsmenn Ríkisútvarpsins misst vinnuna. Sumir voru launamenn en aðrir verktakar, langflestir í fullu starfi og stór hluti vann á Fréttastofunni, bæði í Reykjavík og úti á landi. Stjórn Félags fréttamanna harmar að nú sé ráðist í þriðja sinn á stuttum tíma að Fréttastofu Ríkisútvarpsins með blóðugum niðurskurðarhnífi. Stutt er frá því helsta tekjustofni Ríkisútvarpsins var breytt með lögum frá Alþingi úr því að vera afnotagjald sem stofnunin innheimti sjálf, yfir í að vera nefskattur sem ríkið innheimtir með öðrum sköttum. Blekið var varla þornað á hinum nýju lögum þegar Alþingi ákvað að taka hluta nefskattsins til sín. Þessi óheiðarlega framkoma löggjafasamkundunar er með ólíkindum, einkum þegar haft er í huga að á sama tíma styrkir ríkið aðra fjölmiðla um milljarða króna með niðurfellingum skulda í gegnum opinbera banka. Ljóst er að geta Fréttastofunnar til faglegrar og vandaðrar umfjöllunar er verulega sködduð vegna vanhugsaðra ákvarðanna Alþingis og ríkisstjórnar. Sjaldan hefur þó verið meiri þörf á vönduðum og áræðanlegum fréttum en nú. Stjórn félags fréttamanna spyr hvort tilgangurinn sé að draga svo mátt úr Fréttastofunni að hún verði ófær um að sinna lögbundnu og lýðræðislegu eftirlits- og aðhaldshlutverki sínu? Ábyrgðin hvílir á herðum ríkisstjórnarinnar og Alþingis, sem nú hafa opinberað algert virðingarleysi sitt fyrir Ríkisútvarpinu, hlutverki þess, starfsfólki og eigendum. Sérhver alþingismaður ber persónulega ábyrgð á uppsögnunum. Stjórn félags fréttamanna.
Mest lesið Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Innlent Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Erlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Erlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við Innlent Fleiri fréttir Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Sjá meira