Dagur: Fannst ég ekki gera Íslandi grikk Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 21. janúar 2010 22:43 Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Austurríkis. Mynd/Leena Manhart
Dagur Sigurðsson var vitanlega kampakátur með stigið sem Austurríki náði gegn Íslandi í kvöld með því að skora þrjú mörk á síðustu 50 sekúndum leiksins. Hann segist þó ekki hafa velt því fyrir sér hvort leikurinn væri tapaður áður en kom til þess. „Ég verð nú að viðurkenna að ég var ekkert að hugsa um það. Ég var frekar að velta fyrir mér hvað ég gæti gert til að koma liðinu til aðstoðar,“ sagði Dagur við Vísi eftir leikinn í kvöld en sem kunnugt er er hann landsliðsþjálfari Austurríkis. Þó svo að það hafi verið margt gott við leik Austurríkis í kvöld var hann ekki sáttur við allt við leik liðsins. „Við fengum of mörg mörk á okkur sem komu úr aðstæðum sem ég var búinn að undirbúa þá betur fyrir. Þar voru nokkur atriði í varnarleiknum sem ég hefði viljað að þeir hefði leyst betur. Það var til dæmis alls ekki gott að fá 20 mörk á sig í fyrri hálfleik.“ Hann segir að ýmislegt hafi komið sér á óvart í leik íslenska liðsins í kvöld. „Ég sagði það fyrir leikinn að ég ætti von á að sjá meira til leikmanna eins og Loga og Arons og var búinn að undirbúa liðið fyrir það. Ég átti líka von á að sjá 5-1 vörnina með Guðjón Val fremstan en það kom ekki.“ Dagur spilaði lengi með íslenska landsliðinu og með mörgum af þeim sem eru enn að spila með því í dag. „Mér fannst ég ekki vera að gera Íslandi neinn grikk í kvöld. Leikjunum lýkur bara eins og þeim lýkur og hver er sinnar gæfu smiður. Stemningin í höllinni var frábær og það gerist ekki að sjálfu sér að það sé full höll á handboltaleik í Austurríki. Það er greinilega komin mikill meðbyr með liðinu og er gaman að því.“
Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira