Innlent

Aukinn áhugi á úrsögnum úr kirkjunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það gustar um Þjóðkirkjuna þessa dagana.
Það gustar um Þjóðkirkjuna þessa dagana.
Starfsfólk Þjóðskrár Íslands verður vart við stíganda í fyrirspurnum frá fólki um það hvernig eigi að bera sig að við úrsagnir úr Þjóðkirkjunni. Þetta segir Haukur Ingibergsson, forstjóri stofnunarinnar, í samtali við Vísi.

„Tilfinningin er sú að um þessar mundir fari úrsögnum fjölgandi. En við erum svo sem ekki með tölur í því efni," segir Haukur jafnframt. Hann segir að tölurnar liggi ekki fyrir fyrr en við lok mánaðarins.

Það er óhætt að segja að það hafi gustað um Þjóðkirkjuna að undanförnu. Fyrrverandi biskup, Ólafur Skúlason, hefur verið sakaður um enn eitt kynferðisbrot. Í þetta sinn gegn dóttur sinni. Þá hafa ummæli Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, vakið hörð viðbrögð en hann sagði í blaðagrein um helgina að prestum væri ekki skylt að tilkynna vitneskju sína um meint kynferðisbrot.


Tengdar fréttir

Kirkjugrið og níðingar

Ætli okkur sé ekki flestum heldur hlýtt til þjóðkirkjunnar? Fólk treystir þessari stofnun til þess að vera vettvangur fyrir mikilvægustu stundir lífsins. Kirkjan er svolítið syfjuleg stundum sem er ágætt, því ekki fer vel á æsingi og hamagangi í trúarefnum.

Trúnaður verður að ríkja

Baráttunni gegn kynferðislegu ofbeldi og barnaníði má aldrei linna. Um aldir lágu kynferðisglæpir í algeru þagnargildi. Þannig sátu þolendur uppi aleinir með afleiðingar þess níðs sem þeir höfðu orðið fyrir og gerendur fengu iðulega að halda áfram iðju sinni óáreittir. Umhverfið snéri sér bara undan og þóttist ekki sjá og vita.

Sigrún Pálína: Karl og Hjálmar reyndu að þagga niður í mér

Sigrún Pálína Ingvarsdóttir segir að eftir misheppnaðar sáttatilraunir við Ólaf Skúlason, þáverandi biskup, hafi Karl Sigurbjörnsson, núverandi biskup, og Hjálmar Jónsson, núverandi Dómkirkjuprestur, reynt að þagga niður í henni. Karl hafi meðal annars vísað til þess að hún ekki gert sjúkri móður sinni það að halda málinu til streitu. Sjálfur segist Karl ekki hafa tekið þátt í að beita Sigrúnu óeðlilegum þrýstingi til að fá hana til að falla frá ásökunum sínum.

Sakar biskup um rangfærslur

Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, sakar Karl Sigurbjörnsson núverandi biskup um rangfærslur í orðsendingu til fjölmiðla í gær. Þar sagði Karl að hann hefði ekki tekið þátt í því að þagga mál Sigrúnar Pálínu niður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×