Handbolti

Noregur með öruggt sæti á næstu þremur stórmótum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir stýrir leikhléi í leik með norska landsliðinu á EM.
Þórir stýrir leikhléi í leik með norska landsliðinu á EM. Nordic Photos / AFP
Með sigrinum í úrslitaleik Evrópumeistaramótsins í handbolta í dag tryggðu Norðmenn sér þátttökurétt í næstu þremur stórmótum í handbolta.

Um er að ræða HM sem fer fram í Brasilíu á næsta ári, Ólympíuleikana í Lundúnum árið 2012 og svo Evrópumeistaramótið sem fer fram í Hollandi síðar sama ár.

„Við duttum í lukkupottinn," sagði Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari Noregs, eftir sigurinn í dag. „Nú getum við sinnt okkar vinnu næstu árin án álagsins sem fylgir því að taka þátt í undankeppnum."

Norðmenn lögðu Svía í úrslitaleiknum í dag, 25-20. „Þetta var ekki góður leikur," sagði Þórir. „En mikil barátta og við unnum leikinn á góðri vörn og markvörslu. Ég er afar ánægður."

Hann hrósaði sænska liðinu sérstaklega. „Fyrir mótið spáðu norsku þjálfararnir því að Svíar myndu komast í undanúrslit. Við höfðum rétt fyrir okkur. Svíar hafa unnið vel í sínum málum og veittu okkur mikla mótspyrnu í dag."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×