Seðlabankinn með slakan árangur í verðbólgubaráttu 20. desember 2010 10:00 „
Mikilvægt er að skoða þá valkosti sem standa til boða í ljósi þess að árangur þeirrar peningastefnu sem tekin var upp snemma á þessum áratug hefur ekki reynst nægur. Þótt fyrirkomulagið hafi verið byggt á hugmyndum hagfræðinnar um besta fyrirkomulag peningamála og reynslu fjölda landa sem náð hafa góðum árangri í stjórn peningamála, hefur árangur Seðlabankans í viðureigninni við verðbólgu verið slakur nánast allt tímabilið frá því að verðbólgumarkmiðið var tekið upp og verri en í öðrum ríkjum með sambærilegt fyrirkomulag." Þetta kemur fram í skýrslu Seðlabankans um peningastefnuna eftir gjaldeyrishöftin þar sem m.a. eru skoðaðir þeir möguleikar sem eru í stöðunni núna til að breyta peningastefnu bankans. „Væntanlega eru margar ástæður fyrir slökum árangri. Þ.á m. má nefna að gerð íslensks þjóðarbúskapar gerir sjálfstæða peningastefnu erfiða viðfangs, óvenjulegar aðstæður voru í bæði alþjóðlegum og innlendum efnahagsmálum og fjármálamörkuðum og ákveðinn misbrestur var í framkvæmd peningastefnunnar, sem tókst ekki að ávinna sér nægilegan trúverðugleika," segir í skýrslunni. Síðan segir að þessu til viðbótar er líklegt að vaxandi alþjóðavæðing innlends fjármálakerfis og ofvöxtur þess hafi orðið til þess að veikja miðlun peningastefnunnar út í efnahagslífið og skapa áhættu í fjármálakerfinu sem magnaði gengissveiflur sem reyndust erfiðar viðureignar fyrir peningastefnuna. Stefnan í opinberum fjármálum var einnig mjög á skjön við stefnuna í peningamálum sem jók á neikvæð hliðaráhrif peningalegs aðhalds. „Ef fallið yrði frá sjálfstæðri peningastefnu með fljótandi gjaldmiðil og tekin upp fastgengisstefna væri heppilegast út frá hagrænum sjónarmiðum að festa gengi krónunnar við evruna. Fastgengisstefna hefur bæði kosti og galla. Meðal helstu kosta eru að óvissa tengd gengissveiflum verður minni, a.m.k. ef tekst að varðveita fastgengið og forðast spákaupmennskuárásir. Á móti kemur að sjálfstæðri peningastefnu verður ekki beitt með innlendar efnahagsaðstæður í huga," segir í skýrslunni. „Aðlögun þjóðarbúskaparins í kjölfar ytri skella á sér því stað í meira mæli í gegnum raunstærðir líkt og atvinnu og framleiðslu. Þetta er þó ekki einhlítt, því að innlendar hagsveiflur kunna einnig að eiga rót sína að rekja til gengissveiflna að nokkru leyti. Verði fastgengisfyrirkomulag hins vegar tekið upp, eru mismunandi útfærslur mögulegar. Innganga í Myntbandalag Evrópu, sem fylgir aðild að Evrópusambandinu, virðist betri kostur en tenging við evruna eða einhliða upptaka hennar eða önnur veikari form fastgengistenginga."
Tengdar fréttir Seðlabankinn telur evruna besta kostinn Innganga í EMU, Myntbandalag Evrópu, sem fylgir aðild að Evrópusambandinu, virðist því besti kosturinn, eigi á annað borð að festa gengi krónunnar við evru eða taka hana upp sem innlenda mynt. 20. desember 2010 09:33 Seðlabankinn birtir skýrslu um peningastefnuna Seðlabanki Íslands hefur birt skýrslu um peningastefnu hér á landi og afhent hana efnahags- og viðskiptaráðherra. Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu sjónarmiðum er varða framtíðarfyrirkomulag gengis- og peningamála. 20. desember 2010 08:53 Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Nvidia metið á 615 billjónir króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira
Seðlabankinn telur evruna besta kostinn Innganga í EMU, Myntbandalag Evrópu, sem fylgir aðild að Evrópusambandinu, virðist því besti kosturinn, eigi á annað borð að festa gengi krónunnar við evru eða taka hana upp sem innlenda mynt. 20. desember 2010 09:33
Seðlabankinn birtir skýrslu um peningastefnuna Seðlabanki Íslands hefur birt skýrslu um peningastefnu hér á landi og afhent hana efnahags- og viðskiptaráðherra. Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu sjónarmiðum er varða framtíðarfyrirkomulag gengis- og peningamála. 20. desember 2010 08:53