Vísbendingar eru um sterkan þorskárgang 21. nóvember 2009 06:00 Farsæll á veiðum Haustrall Hafró gefur til kynna að sterkur árgangur komi inn í veiðina eftir fjögur til fimm ár.fréttablaðið/jse
Niðurstöður haustralls Hafrannsóknastofnunarinnar gefa vísbendingar um að 2008-árgangurinn í þorski sé sterkur. Þetta kom fram í haustrallinu, sem er mikilvægur þáttur í árlegri úttekt Hafró á ástandi nytjastofna við landið sem lýkur í júní ár hvert. Á bak við niðurstöðurnar eru þó mun minni gögn en að lokinni stofnmælingu að vori. „Þetta er aðeins einn hluti af okkar mælingu. Stofnmælingin í mars vegur mun þyngra í mati okkar á þorskstofninum. Því er hins vegar ekki að leyna að eftir því sem haustmælingarnar verða fleiri [hófust 1996, innskot blaðamanns], því marktækari verður hún. Engu að síður er ástæða til að draga andann djúpt þar til niðurstöður úr vorrallinu og úttekt á aflasamsetningu liggja fyrir í vor,“ segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Jóhann segir að mælingin nú sýni einnig stærri og þyngri fisk, en það sé í samræmi við væntingar vegna aflasamdráttarins síðastliðin tvö ár. Hann segir mikilvægt að halda áfram á sömu braut; auka ekki veiðina að svo stöddu en njóta ávaxta uppbyggingarstarfsins þegar þar að kemur. „Við verðum hins vegar að fá fleiri sterka eða meðalsterka árganga inn í stofninn til þess að geta átt von á verulega aukinni veiði á komandi árum,“ segir Jóhann. „Okkar ráðgjöf gengur út á að fá hærra hlutfall af stórum fiski inn í stofninn til þess að auka líkurnar á því að fá röð sterkra árganga inn í veiðistofninn.“ Á sama tíma og stofnmælingin sýnir sterkan 2008-þorskárgang kemur á móti að fyrstu vísbendingar gefa til kynna að 2009-árganginn sé undir meðalstærð. Haustrallið gefur litla ástæðu til bjartsýni hvað varðar ýsustofninn. Heildarvísitalan er ekki nema rúmlega helmingur þess sem hún var árið 2004 og hefur lækkað um tuttugu prósent á milli ára. „Það er í samræmi við okkar rannsóknir og eftir gríðarlega sterkan ýsuárgang 2003, í reynd risaárgang í sögulegu samhengi, hefur þetta eðlilega verið niður á við.“ Jóhann segir margt benda til að fullmikið hafi verið veitt af ýsu á undanförnum árum en 2003-árgangurinn hafi staðið undir þeirri veiði. Útlit er fyrir að grálúðan sé að hjarna við. Meira er af ungfiski í haustralli og gefur það vísbendingu um að veiðistofninn muni stækka á næstu árum. Ástand stofnsins er þó enn talið lélegt. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira