Ráðherrar funda með Dalai Lama 2. júní 2009 13:12 Mynd/Anton Brink
Fundur tveggja ráðherra og tveggja þingflokksformanna með Dalai Lama hófst á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 13 en forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sætt gagnrýni fyrir að eiga ekki fund með trúarleiðtoganum á meðan að hann dvelur hér á landi. Fundinn á Nordica sitja auk Dalai Lama Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, og Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Trúarleiðtoginn mun á eftir hitta Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, og þá mun hann eiga fund með þingmönnum utanríkismálanefndar. Ráðherrarnir Árni Páll Árnason og Svandís Svavarsdóttir mættu í samtrúarlega friðarstund í Hallgrímskirkju í gær þar sem Dalai Lama flutti ávarp. Troðfullt var út af dyrum í morgun þegar trúarleiðtoginn flutti erindi í Hátíðarsal Háskóla Íslands.
Tengdar fréttir Dalai Lama heimsækir Háskóla Íslands Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta sem verið hefur í útlegð í hálfa öld, heimsækir Háskóla Íslands í dag í boði rektors og Hugvísindasviðs skólans þar sem hann mun eiga samverustund með stúdentum og starfsfólki skólans. 2. júní 2009 09:30 Hitti Dalai Lama fyrir nær hálfri öld Sigurður A. Magnússon rithöfundur vonast til þess að endurfundir verði með honum og Dalai Lama en þeir hittust árið 1960 í Efra Dharamsala á Indlandi. Þá var Dalai Lama 25 ára og hafði verið eitt ár í útlegðinni sem hófst þegar Kínverjar brutu á bak aftur uppreisn Tíbeta. Sú uppreisn hafði staðið yfir í níu ár, eða frá því að Kínverjar hernámu landið árið 1950. 2. júní 2009 04:00 Dalai Lama trekkti að í Háskólanum Dalai Lama, friðarverðlaunahafi Nóbels, heimsótti Háskóla Íslands í morgun og flutti erindi í Hátíðasalnum í boði rektors Háskólans og Hugvísindasviðs HÍ. Mjög létt var yfir samkomunni og hlógu áheyrendur margsinnis dátt og innilega með Dalai Lama að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, bauð Dalai Lama velkominn og sagði í máli sínu að það væri skólanum afar mikill heiður að fá hann í heimsókn. Kristín sagði að heimsóknin væri á hárréttum tíma fyrir Íslendinga þar sem hér væri verið að endurhugsa siðferðileg gildi samfélagsins. 2. júní 2009 12:08 Mest lesið Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Erlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Innlent Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Erlent „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Fresta leit að Sigríði Innlent Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Innlent Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Innlent Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Innlent Fleiri fréttir „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Dvalarheimili klárt á Laugarvatni en ekkert gerist í stjórnkerfinu „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Fresta leit að Sigríði Slökktu gróðurelda á Ströndum með aðstoð þyrlu Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Andlát frönsku ferðamannanna vekur eftirtekt erlendis Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Uppnám á Alþingi og í beinni frá Bíladögum „Stjórnlaus“ ríkistjórnin beiti rökum úr verkfærakistu Trumps Þingmenn stjórnarandstöðu foxillir yfir því að funda á sunnudegi Fimmtíu manns tóku þátt í leit sem stóð til fjögur í nótt Hár orkukostnaður er áhyggjuefni hjá atvinnulífinu Leitað að konu á sextugsaldri, fíkniefni á landamærum og skundað á Þingvöll Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Þinglok, Íran og rökrætt um skattastefnu Einn handtekinn eftir hópslagsmál Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Lögreglan lýsir eftir Sigríði Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Fékk hláturskast í ræðustól „Það er svo mikið rugl í gangi“ Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Nýtt dæluhús veldur óánægju á Selfossi „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Sjá meira
Dalai Lama heimsækir Háskóla Íslands Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta sem verið hefur í útlegð í hálfa öld, heimsækir Háskóla Íslands í dag í boði rektors og Hugvísindasviðs skólans þar sem hann mun eiga samverustund með stúdentum og starfsfólki skólans. 2. júní 2009 09:30
Hitti Dalai Lama fyrir nær hálfri öld Sigurður A. Magnússon rithöfundur vonast til þess að endurfundir verði með honum og Dalai Lama en þeir hittust árið 1960 í Efra Dharamsala á Indlandi. Þá var Dalai Lama 25 ára og hafði verið eitt ár í útlegðinni sem hófst þegar Kínverjar brutu á bak aftur uppreisn Tíbeta. Sú uppreisn hafði staðið yfir í níu ár, eða frá því að Kínverjar hernámu landið árið 1950. 2. júní 2009 04:00
Dalai Lama trekkti að í Háskólanum Dalai Lama, friðarverðlaunahafi Nóbels, heimsótti Háskóla Íslands í morgun og flutti erindi í Hátíðasalnum í boði rektors Háskólans og Hugvísindasviðs HÍ. Mjög létt var yfir samkomunni og hlógu áheyrendur margsinnis dátt og innilega með Dalai Lama að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, bauð Dalai Lama velkominn og sagði í máli sínu að það væri skólanum afar mikill heiður að fá hann í heimsókn. Kristín sagði að heimsóknin væri á hárréttum tíma fyrir Íslendinga þar sem hér væri verið að endurhugsa siðferðileg gildi samfélagsins. 2. júní 2009 12:08