Vegið að góðu fyrirtæki Jóhannes Jónsson skrifar 27. nóvember 2009 06:00 Morgunblaðið hefur farið mikinn undanfarið gegn Högum. Af einhverjum ástæðum hafa fréttir af endurskipulagningu fyrirtækisins farið illa í þá í Hádegismóum. Blaðið heimtar nýtt eignarhald. Með ástæðulausum aðdróttunum er vegið að góðu fyrirtæki og um leið reynt að rýra eignir kröfuhafa Arion banka. Hagar hafa staðið sig vel gagnvart neytendum og fyrirtækið er í góðum rekstri. Skýr stefna Bónuss um lágt vöruverð um land allt hefur skilað fyrirtækinu og viðskiptavinum árangri. Stefnan hefur verið sú, að sparnaði í rekstri er skilað til viðskiptavina í lægra vöruverði. Skipulag aðfanga ásamt frábæru starfsfólki hefur verið helsti lykillinn að velgengninni auk þess sem erlend viðskiptasambönd eru afar dýrmæt. Til að undirstrika þetta hefur hið virta fyrirtæki PricewaterhouseCoopers í London ráðið einn aðaleigenda Haga til að hafa umsjón með nokkrum af stærstu fyrirtækjum Bretlands á sviði smásölu. Fullyrt hefur verið á síðum blaðsins, bæði í fréttum og af forsvarsmönnum Þjóðarhags, að neytandinn þurfi að borga skuldir Haga, ef fyrirtækið eigi að rísa undir þeim. Væri það rétt, hlytu að skapast tækifæri fyrir nýja keppinauta eða hvað? Er það ekki grunnstefið í frjálshyggjunni? Af hverju stofna ekki forsvarsmenn Þjóðarhags nýja verslun, sem keppir við vonda risann sem þarf að rísa undir öllum fjármagnskostnaðinum sem þeir lýsa? Sömu menn fullyrða, að það séu engin geimvísindi að reka matvörubúð. Mikið rétt, en hvers vegna sér þessi hópur sér þá ekki leik á borði og fer í slaginn? Það gerðum við á sínum tíma. Sömuleiðis hefur verið fullyrt að Jón Ásgeir, sonur minn, hafi valdið þúsund milljarða tjóni hjá hluthöfum í fjölmörgum skráðum almenningshlutafélögum í Kauphöll Íslands með innkomu sinni. Þetta er alrangt. Reikningskúnstir og illmælgi manna við þessa útreikninga eru hreint með ólíkindum. Það er engu líkara en að tekin séu öll félög Kauphallarinnar og allt skrifað á hann. Því miður töpuðu hluthafar hlutafjáreign sinni víða, rétt eins og hann sjálfur. Í þessari umræðu er þó rétt að benda á, að með öllu er litið framhjá þeim verðmætu eignum, sem teknar voru upp í skuldir, sbr. eignir Baugs í Bretlandi. En spurningin er: hvað vakir fyrir því fólki, sem lætur róginn vinna fyrir sig? Umræðan er á villigötum. Við megum ekki halda áfram að kasta verðmætum á glæ með því að henda góðu fólki út úr fyrirtækjum og um leið eyðileggja þau. Það verður að fara að horfa fram á veginn. Gerum okkur grein fyrir því, að það þarf að endurskipuleggja um 70% af öllum íslenskum fyrirtækjum. Veruleikinn er sá sami hjá fyrirtækjum og fjölskyldum. Eignirnar hafa lækkað í verði og lánin hækkað. Það er vandamál dagsins. Starfsmenn bankanna verða að fá að mæta þeim vanda eftir þeim verklagsreglum sem þeir hafa kynnt og lögum sem Alþingi hefur sett. Það verður að treysta þeim til að gera það besta í stöðunni. Í málefnum 1998 hef ég lagt fram tilboð og tillögur að lausn sem byggist á því að lagt verði fram nýtt hlutafé til rekstursins - ekki er gert ráð fyrir neinum afskriftum skulda. Margir eru hugsi yfir því mikla púðri sem eytt er í fyrirtækið, sem ég er stjórnarformaður í, á síðum Morgunblaðsins. Gæti verið að það sé vegna þess að fyrirtæki Haga auglýsa ekki í Morgunblaðinu? Sú ákvörðun er meðvituð af hálfu Haga, algjörlega tekin út frá viðskiptalegum forsendum. Morgunblaðið hefur ekki þann slagkraft sem það áður hafði og krafturinn minnkar frá degi til dags. Það veit öll þjóðin. Áskrifendum hefur fækkað um 25% undanfarna mánuði og ég veit til þess að lausasalan hefur fallið um meira en 40%. Hátt auglýsingaverð og lítil dreifing er ekki eftirsótt samsetning fyrir auglýsendur. Við auglýsum í þeim miðlum, sem eru með mesta útbreiðslu - þar sem við fáum mest fyrir hverja krónu. Það er líka eðlilegt að spurt sé hverjir standi að baki Þjóðarhag. Getur verið að starfsmaður Morgunblaðsins hafi í raun skrifað grein forsvarsmanns Þjóðarhags? Orðalagið er óneitanlega kunnuglegt. Getur verið að eigendur Morgunblaðsins standi að baki Þjóðarhag og vilji komast yfir Haga fyrir lítið? Getur verið að hinum gegnfölsku skrifum ritstjóra Morgunblaðsins um afskriftir skulda sé ætlað að beina athyglinni frá afskriftareynslu þeirra beggja? Annar var valdur að 300 milljarða afskrift á kostnað ríkissjóðs og hinn keypti eignir Viðskiptablaðsins á eina krónu og lét afskrifa skuldir í hinu svokallaða gamla félagi. Eru þetta réttu mennirnir til að halda predikanir? Getur verið að hinn svokallaði Þjóðarhagur sé í rauninni eingöngu hagur Morgunblaðsins? Í von um réttláta og sanngjarna viðskiptahætti: Stöndum vörð um samkeppni í verslun í landinu. Höfundur er stofnandi Bónuss og stjórnarformaður Haga hf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson skrifar Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Linsa Lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson skrifar Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun