Innlent

Áfrýjar en stýrir ekki daglegum málum

Eva joly og ragna árnadóttir.   fréttablaðið/daníel
Eva joly og ragna árnadóttir. fréttablaðið/daníel

Ríkissaksóknari stýrir ekki daglegum málum sérstaks saksóknara. Hins vegar tekur hann ákvörðun um áfrýjun. Það tekur einungis nokkrar klukkustundir á ári, að sögn Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara.

Valtýr segir misskilnings hafa gætt um embætti ríkissaksóknara. „Ríkissaksóknari er formlega yfir rannsókn bankahrunsins en má ekki skipta sér af sérstökum saksóknara. Margir halda að ríkissaksóknari geti ákveðið hverja eigi að kæra og hverja ekki. Það er ekki rétt. Menn átta sig ekki á því að embætti sérstaks saksóknara er sjálfstætt, svipað og efnahagsbrotadeild." segir Valtýr.

Frumvarp dómsmálaráðherra um skipan sérstaks ríkissaksóknara var rætt á fundi allsherjarnefndar í gær.

„Ég hef alltaf sagt að ódýrasta og eðlilegasta leiðin er að það verði settur ríkissaksóknari í þennan málaflokk," segir Valtýr sem lýsti sig vanhæfan 18. maí til að fara með málefni er varða bankahrunið. Við það að Valtýr lýsti sig vanhæfan rofnuðu öll tengsl embættis ríkissaksóknara og sérstaks saksóknara, að sögn Valtýs.

„Um daginn sá ég að þess væri krafist að ég viki, þar sem starfsmenn mínir þyrftu að vinna að málinu. En um leið og ég lýsti mig vanhæfan yfir þessum málaflokki þá urðu allir mínir starfsmenn vanhæfir um leið."

Deilur eru innan allsherjarnefndar um leiðir til að taka á vanhæfi Valtýs. Í tillögu dómsmálaráðherra er lagt til að skipaður verði sérstakur ríkissaksóknari yfir málaflokknum, sem þýðir að stofnað verði sérstakt embætti. Athugasemdir hafa komið fram og telja sumir, þar á meðal Valtýr, að hentugasta leiðin sé að setja ríkissaksóknara yfir málaflokknum, svipað og tíðkast þegar ríkissaksóknari lýsir sig vanhæfan í einstökum málum. Dómsmálaráðherra hefur talið að ekki sé lagaheimild fyrir þessu.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar, segist efnislega sammála frumvarpi dómsmálaráðherra. Búið er að funda þrjá daga í röð um frumvarpið. Eftir á að vinna nefndarálitið, en Steinunn gerir ráð fyrir „að það verði klárað öðru hvoru megin við helgina".

Birgir Ármannsson, fulltrúi í allsherjarnefnd, segir að samstaða sé um meginefni frumvarpsins en mismunandi skoðanir séu um lagatæknilegu hliðina.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×