Hugleikur grætur Dr. Jón 14. maí 2009 07:00 dr. jón karl friðrik geirsson arnested er fallinn frá Þessi merki köttur lifði litríku lífi og notaði öll sín níu líf. Hann var fyrirmynd að verki myndasöguhöfundarins Hugleiks Dagssonar.
Dr. Jón er fyrirmyndin að eineygða kettinum Kisa sem er sköpunarverk Hugleiks. Dr. Jón er að öllum líkindum frægasti köttur landsins, lifði litríku lífi og náði því sem fáum mennskum tekst: Að knésetja heimskt kerfið. „Já, Dr. Jón er dáinn. Dauður? Ég hef aldrei náð því af hverju við eigum að hafa einhver öðruvísi orð yfir þetta nákvæmlega sama ástand þegar mannfólkið á í hlut,“ segir Hugleikur Dagsson rithöfundur þegar honum er bent á að oftast sé talað um að dýr drepist en ekki að þau deyi. Einn frægasti köttur landsins er… dáinn. Dr. Jón var Hugleiki sem Eiríkur á Brúnum Halldóri þegar hann skrifaði sögu Steinars Steinssonar í Paradísarheimt. Dr. Jón var sem sagt fyrirmyndin að eineygða kettinum Kisa sem Hugleikur hefur fjallað um í máli og myndum. „Ég fattaði ekki fyrr en ég var hálfnaður með sex síðna myndasögu um Kisa að ég var að byggja á ketti sem ég þekkti. Hann hafði smogið inn í undirmeðvitund mína,“ segir Hugleikur. Eða þekkti og þekkti. Dr. Jón leyfði Hugleiki ekki að kynnast sér neitt að ráði. Fór sínar eigin leiðir og það líkar Hugleiki vel. „Hann kláraði öll sín níu líf. Hann var mikið að djamma á miðjum aldri, en í mannsárum hefur hann náð því að verða áttatíu ára, en hann var eitt sinn að elta á sér typpið eins og kettir gera, varð fyrir bíl og missti augað,“ segir Hugleikur, sem reyndar telur rétt að frændi hans og eigandi Dr. Jóns, Guðlaugur Jón Árnason íslenskufræðingur, sé til svara en hann var yfirlýstur eigandi kattarins. „Hann hefur verið um sextán ára. En þetta var litríkur köttur. Og til er nokkuð stór mappa um hann því Dr. Jón kom margoft við sögu í fjölmiðlum og Sigmund teiknaði eitt sinn mynd af honum,“ segir Guðlaugur sem upplýsir að Dr. Jón hafi heitið fullu nafni Dr. Jón Karl Friðrik Geirsson Arnested í höfuðið á efnafræðiprófessor við Háskóla Íslands. En sá var eigandi móður Dr. Jóns. Ástæðan fyrir því að Dr. Jón var svo mjög til umfjöllunar í fjölmiðlum var sú að hann lenti í aðalhlutverki þegar borgin fór í eina af sínum umdeildustu herferðum. „Einhverja þá heimskulegustu og er þá langt til jafnað,“ segir Hugleikur. En þá tók borgin fullt tillit til kvartana húsmæðra í vesturbænum sem kvörtuðu undan heimsóknum katta í garða, eins og kettir gera, og voru settar upp villikattagildrur. En einu fórnarlömb voru heimiliskettir og fyrstur til að lenda í gildru var Dr. Jón. Eigandi hans rak augun í hann í sjónvarpinu og leysti hann út fyrir fúlgu fjár. Dr. Jón átti eftir að lenda þrisvar í villikattagildrunum sem varð til þess að fjölmiðlar fóru að veita þessum ketti athygli og svo fór að endingu að borgin féll frá þessum aðgerðum. Þannig knésetti Dr. Jón heimskt kerfið að mati Hugleiks sem nú er í miðju kafi við að skrifa um Ævintýri eineygða kattarins Kisa, annar hluti. eineygi kötturinn kisi Dr. Jón eins og hann birtist í verkum Hugleiks Dagssonar.
Mest lesið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Sjá meira